Search
Close this search box.
Search
Close this search box.

Félagsmenn Eflingar hjá Reykjarvíkurborg samþykktu kjarasamninginn

Félagsmenn Eflingar sem starfa hjá Reykjavíkurborg og ríki hafa greitt atkvæði um kjarasamninga sem undirritaðir voru í byrjun mars. 
 
Báðir samningar voru samþykktir með yfirgnæfandi meirihluta. 
 
Af þeim 777 sem greiddu atkvæði um Reykjavíkurborgarsamninginn sögðu 715 eða 92% já og 49 eða 6% sögðu nei. 13 eða 2% tóku ekki afstöðu. Alls voru 1858 á kjörskrá og kjörsókn því 42%.
 
Af þeim 72 sem greiddu atkvæði um ríkissamninginn sögðu 69 eða 96% já og 2 eða 3% sögðu nei. 1 eða 1% tók ekki afstöðu. Alls voru 545 á kjörskrá og kjörsókn því 13%.
 
Atkvæðagreiðslan var rafræn og stóð frá hádegi mánudaginn 23. mars til hádegis í dag föstudaginn 27. mars. 
 
„Niðurstaðan felur í sér staðfestingu á því að mikilvægt skref hefur verið stigið í leiðréttingu lægstu launa. Stoltust er ég af að hafa tekið þátt í því að auka virðingu og kjör láglaunakvenna í sögulega vanmetnum störfum. Þessir samningar eru sannarlega eftirtektarvert innlegg í baráttu láglaunakvenna fyrir að vera metnar að verðleikum. Um leið vil ég taka fram að baráttan heldur áfram. Næsti slagur felst í því að ná samsvarandi samningum fyrir félaga okkar hjá hinum sveitarfélögunum. Svo höldum við áfram að ryðja brautina fyrir betra lífi fyrir okkar fólk,“ sagði Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.

Author

Tengdar fréttir