44. þing ASÍ haldið í fjarfundi á miðvikudag

Höfundur

Ritstjórn

ASÍ heldur rafrænt þing 21. október 2020 þar sem kjarnaatriðin, samkvæmt lögum ASÍ, eru afgreidd en þinginu svo frestað fram á vor þegar farið verður í málefnavinnu. Mikilvægt er að þingfulltrúar kynni sér vel hvernig það á að bera sig að við innskráningu á þingið, biðja um orðið og kjósa í kosningum á þinginu.

ASÍ hefur sett saman leiðbeiningar á íslensku og ensku sem sýna hvernig þingfulltrúar eiga að bera sig að á þessum 300 manna Zoom fundi.

Slóð á sérstakan þingvef.

Dagskrá þingsins:

Miðvikudagur, 21. október

Kl. 10:00
Þingsetning
Ávarp forseta ASÍ
Ávarp félags- og húsnæðismálaráðherra
Ávarp ASÍ-UNG

Opnunarerindi
Sharan Burrow, framkvæmdastjóri ITUC: Réttlát umskipti

Kl. 11:20
Stutt hlé

Kl. 11:30
Álit kjörbréfanefndar
Afgreiðsla kjörbréfa
Kosning þingforseta og embættismanna þingsins
Þingsköp ASÍ – afgreiðsla tímabundinna frávika

Tillaga um frestun tiltekinna dagskrárliða til framhaldsþings:
– Málefni þingsins – kynningu, umræðum og afgreiðslu frestað.
o Öflugt atvinnulíf á sjálfbærum grunni – góð græn störf
o Réttindi og félagsleg vernd
o Menntun til framtíðar
o Réttlátt skattkerfi
– Lagabreytingar – kynningu, umræðum og afgreiðslu frestað.

Kl. 11:45
Skýrsla forseta ASÍ
Ársreikningar ASÍ og stofnana

Kosningar og almennar umræður hefjast

Kosning forseta ASÍ
Kosning 1. og 2. varaforseta
Kosning í miðstjórn: aðal- og varamenn
Kosning aðalskoðunarmanna og varamanna
Kosning löggilts endurskoðanda
Kosning kjörnefndar

Kl. 12:15
Stutt hlé

Kl. 12:30
Almennar umræður halda áfram

Kl. 14:00
Forseti ASÍ frestar 44. þingi sambandsins

Nefndarstörfum og málefnavinnu, ásamt umræðum og afgreiðslu, verður frestað fram á vor 2021.

Tengdar fréttir

  • Vel heppnað þing ASÍ-UNG

    ASÍ-UNG hélt sitt 11. þing föstudaginn 17. október og var…

    Ritstjórn

    20. okt 2025

  • Skýrsla forseta ASÍ 2025 komin út

    Skýrsla forseta fyrir árið 2025 er að venju efnismikil og…

    Arnaldur Grétarsson

    17. okt 2025

  • ASÍ gagnrýnir niðurskurð og óttast aukna verðbólgu

    Alþýðusamband Íslands gerir athugasemdir við áform ríkisstjórnarinnar um niðurskurð eins…

    Ritstjórn

    17. okt 2025