8,8% verðbólga í júní

Höfundur

Ritstjórn

Vísitala neysluverðs hækkaði um 1,4% í júní. Verðbólga mælist nú 8,8% og hækkar um 1,2 prósentustig milli mánaða. Verðbólga hefur ekki mælst hærri frá október 2009. Um helmingur undirliða verðbólgunnar hækkaði milli mánaða. Síðustu tólf mánuði hækkuðu um 70% undirliða umfram verðbólgumarkmið (2,5%).

Af hækkun verðbólgu eru það húsnæðisliður og bensín sem skýra stærsta hlut. Bensín og olía hækkuðu um 10% milli mánaða, á ársgrundvelli er hækkunin 44%. Af hækkun verðbólgunnar milli mánaða skýrir bensín og olía umtalsverðan hluta hækkunarinnar.

Um þessar mundir vegur húsnæðiskostnaður einna þyngst í hækkun verðlags. Húsnæðiskostnaður vegur í heild um þriðjung í útgjöldum heimila, þar af um 16% vegna kostnaðar við eigið húsnæði og er því mikill áhrifaþáttur í verðlagsþróun.

Verðbólga án húsnæðisliðar mælist nú 6,5% og er því 2,3 prósentustigum hærri en verðbólga með húsnæðisliðnum. Þessi munur hefur hækkað jafnt og þétt frá árslokum 2021.

Erfiðara að safna fyrir innborgun

Í ár hefur húsnæðisverð hækkað um 1,5-3,2% mánaðarlega. Um land allt er húsnæðisverð nú 23% hærra en það var fyrir 12 mánuðum. Frá ársbyrjun 2021 hefur húsnæðisverð hækkað umtalsvert meira en laun. Nú er því mun erfiðara að safna sér fyrir innborgun samanborið við stöðuna fyrir einu og hálfu ári.

Umsvif á fasteignamarkaði jukust töluvert árið 2020. Lágir húsnæðisvextir ásamt auknum sparnaði heimilanna ýttu undir húsnæðiskaup heimila og gerðu fyrstu kaupendum auðveldara að koma á fasteignamarkaðinn. Eftirspurn jókst töluvert án þess að framboð ykist í sama mæli. Á síðustu mánuðum hafa umsvið minnkað en eru enn á svipuðu róli og á árunum 2015-19.

Tengdar fréttir

  • ASÍ styrkir Samhjálp um páska

    ASÍ styrkir Samhjálp um 400 þúsund krónur nú í aðdraganda…

    Arnaldur Grétarsson

    15. apr 2025

    Kaffistofa Samhjálpar og merki Samhjálpar
  • Opið fyrir umsóknir í Minningarsjóð Eðvarðs Sigurðssonar 2025

    Minningarsjóður Eðvarðs Sigurðssonar auglýsir eftir umsóknum. Sjóðurinn veitir styrki til…

    Arnaldur Grétarsson

    8. apr 2025

    Eðvarð Sigurðsson
  • Engar tryggingar í frumvarpi um verð á raforku til almennings

    Stjórnvöld taki ekki tillit til sérstöðu raforkumála á Íslandi Alþýðusamband…

    Ritstjórn

    26. mar 2025