5,2% verðbólga í apríl

Höfundur

Ritstjórn

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,81% milli mars og apríl. Verðlag hefur því hækkað um 2,3% frá upphafi árs og ársverðbólga mælist 5,2%. Hækkunin í apríl skýrist helst af Flutningum (0,56%), en innan þess flokks eru útgjaldaliðir á borð við: bensín, dísel og flugfargjöld til útlanda. Auk þess er eftirtektarverð hækkun í Húsnæði, vatni, rafmagni o.fl. (0,19%) sem kemur helst til vegna aukins kostnaðar vegna búsetu í eigin húsnæði. ASÍ hefur ítarlega fjallað um bensínverð undanfarin misseri og hækkanir á eldsneytismörkuðum. Auk þess kynntu ASÍ og BSRB nýja greiningu samtakanna um félagslegt húsnæði fyrr í vikunni.

Mikil hækkun vísitölu en ársverðbólga hjaðnar

Ársbreyting verðbólgu (12 mánaða breyting) stendur nú í 5,2% og lækkar frá fyrri mánuði þegar hún mældist 5,4%. Lækkun ársverðbólgunnar skýrist því af því að miklar verðhækkanir frá því í apríl 2025 falla út úr ársmælingunni þó hækkun í mánuðinum hafi numið 0,81%. Verðbólgutaktur síðustu mánaða mælist því hár, en verðbólga síðustu sex mánaða mælist nú 6,9% á ársgrundvelli. Verðbólga er því töluvert umfram þau viðmið sem lagt var upp með í núgildandi kjarasamningum. Í því samhengi má nefna að forsendur kjarasamninga miða við 4,7% ársverðbólgu í september 2026. Þó teljast forsendur standa ef sex mánaða verðbólga (mars til ágúst) fer ekki yfir 4,4%.

Verð á matvöru stóð í stað

Verð á matvöru og drykkjum stóð í stað í apríl mánuði. Er mælingin í takt við væntingar ASÍ en matvöruvísitala ASÍ hefur hækkað um 0,02% mánuðinum. Verð á matvöru hefur hækkað umtalsvert á fyrstu mánuðinum ársins eða um 2,5% og því er þróunin í apríl nokkuð á skjön við fyrsta ársfjórðung.

Nokkuð mældist af verðlækkunum í mánuðinum. Kjöt lækkaði þannig í verði, um -0,7% og þá helst vegna lækkana á nautakjöti en einnig lækkaði verð á svína- og lambakjöti. Á móti mældust hækkanir á kjúklingakjöti.

Nokkuð hefur dregið úr hækkunum á kaffi og súkkulaði. Árshækkun á súkkulaði mælist 9,5% í apríl og 12,8% á kaffi en árshækkunin náði hámarki á síðasta ári þegar verð á súkkulaði hækkaði um ríflega 26% milli ára í nóvember og kaffi um 22% í október. Þróunin skýrðist að hluta af hækkunum á heimsmarkaði en sú þróun hefur færst til betri vegar síðustu misseri. Samkvæmt hrávöruvísitölum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefur verð á kakóbaunum nú fallið um 60% milli ára og verð á kaffibaunum um 17-31% eftir því hvaða tegund er skoðuð. Þessar lækkanir hafa ekki komið fram í smásöluverði hér á landi.

Mikil áhrif verðhækkana á eldsneytisverði

Verð á eldsneyti hækkaði um 14% í apríl en hækkanirnar má rekja til átaka við Persaflóa og lokunar Hormuz sunds. Alls hækkaði verð á bensíni um 12% og verð á díselolíu um 19,8%. Í lok apríl hafði verð á bensíni hækkað um tæp 22% frá því átökin brutust út sem jafngildir um 34-46 króna hækkun á bensínlítranum. Mestar höfðu hækkanir verið hjá Costco.

Mæling Hagstofunnar í apríl dregur fram bein áhrif af hækkunum olíuverðs sem fram koma í smásöluverði á bensíni. Vænta má þess að óbein áhrif eigi enn eftir að koma fram í verðhækkunum á neysluverði vegna hærri flutningskostnaðar eða hærri framleiðslukostnaðar. Þannig hækkaði verð á flugfargjöldum um 6% í apríl sem er minni hækkun en í apríl 2025.

Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti tekur gildi 1. maí

Þann 1. maí taka gildi tímabundnar aðgerðir ríkistjórnarinnar sem felast í lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti, úr 24% í 11%. Aðgerðir munu hafa áhrif á verðbólgu í maí og geta numið um 0,2 prósentum til lækkunar á verðbólgu.

Tengdar fréttir

  • Ný skýrsla Vörðu um réttlát umskipti í samgöngum

    Réttlát umskipti er hugtak notað til að lýsa hvernig umbreytingar…

    Ritstjórn

    13. apr 2026

  • Opið fyrir umsóknir í Minningarsjóð Eðvarðs Sigurðssonar 2026

    Minningarsjóður Eðvarðs Sigurðssonar auglýsir eftir umsóknum. Sjóðurinn veitir styrki til…

    Ritstjórn

    25. mar 2026

    Eðvarð Sigurðsson
  • ASÍ 110 ára – samstaða verkafólks í rúma öld

    Í dag, 12. mars 2026, eru liðin 110 ár frá…

    Ritstjórn

    12. mar 2026