Skila auðu í fjárlögum

Höfundur

Ritstjórn

Alþýðusamband Íslands (ASÍ) segir í nýrri umsögn um fjárlagafrumvarp ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur að ekki verði betur séð en stjórnvöld hafi ákveðið „að skila auðu í að bæta afkomu heimila”. Stefnumörkun sem ASÍ hafi varað við í fyrri umsögnum birtist í fjárlagafrumvarpinu og áherslur stjórnvalda séu ekki fallnar til að stuðla að sátt á vinnumarkaði.  

Í umsögninni er rifjað upp að ASÍ hafi í umsögn um fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar varað við því að farin yrði leið niðurskurðar og aukinna álaga á heimili. Sú leið myndi ekki leggja grunn að stöðugleika á vinnumarkaði. Sú stefnumörkun sem ASÍ hafi varaði við birtist nú í frumvarpi til fjárlaga.Tekjuöflun felist einkum í hækkun gjalda (krónutölugjöld og nefskattar) og aukinni skattlagningu á ökutæki og notkun bifreiða. Á útgjaldahlið sé fjárfestingum frestað, aðhald aukið og framlög lækkuð að raunvirði til mikilvægra málaflokka. 

Í umsögninni er bent á að ekki sé að finna í fjármálafrumvarpinu þær umbætur sem nauðsynlegar séu á sviði velferðar- og húsnæðismála. Áherslan sé á að auka byrðar launafólks. Þá kemur fram að þörf á aukinni gjaldheimtu gagnvart almenningi skýrist að hluta af lækkun bankaskatts og hækkun frítekjumarks fjármagnstekna. Þessar aðgerðir ríkisstjórnarinnar hafi fyrst og fremst þjónað sérhagsmunum fjármagnsins og hinna tekjuháu í samfélaginu.  

Í umsögninni er lýst áhyggjum af vaxtahækkunum Seðlabanka Íslands sem hafi veruleg áhrif á afkomu heimila. Fjárhæðir vaxtabótakerfisins hafi ekki haldið í við þróun launa og eignaverðs. 

Þá telur Alþýðusambandið gagnrýnivert að bætur atvinnuleysistrygginga hafi ekki verið hækkaðar til jafns við þróun bóta almannatrygginga. 

Umsögn ASÍ um fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar má nálgast hér.

Tengdar fréttir

  • Ný skýrsla Vörðu um réttlát umskipti í samgöngum

    Réttlát umskipti er hugtak notað til að lýsa hvernig umbreytingar…

    Ritstjórn

    13. apr 2026

  • Opið fyrir umsóknir í Minningarsjóð Eðvarðs Sigurðssonar 2026

    Minningarsjóður Eðvarðs Sigurðssonar auglýsir eftir umsóknum. Sjóðurinn veitir styrki til…

    Ritstjórn

    25. mar 2026

    Eðvarð Sigurðsson
  • ASÍ 110 ára – samstaða verkafólks í rúma öld

    Í dag, 12. mars 2026, eru liðin 110 ár frá…

    Ritstjórn

    12. mar 2026