Stjórnvöld efli húsnæðisöryggi

Höfundur

Ritstjórn

Stjórnvöld efli húsnæðisöryggi

Starfshópur um aðgerðir og umbætur á húsnæðismarkaði hefur lokið störfum og kynnt niðurstöður sínar á fundi Þjóðhagsráðs. Tillögur hópsins ná til aukinnar uppbyggingar íbúðarhúsnæðis, endurbætts húsnæðisstuðnings og aukinnar verndar fyrir leigjendur.

Tillögurnar sem hópurinn leggur fram eru alls 28 talsins og er skipt í sjö málaflokka. Áhersla er lögð á  aukið framboð á íbúðarhúsnæði og húsnæðisöryggi. Kveðið er á um rammasamning um byggingu 4.000 íbúða árlega næstu fimm árin og 3.500 íbúða árlega næstu fimm ár, þar á eftir. Þar mun félagslegt húsnæði verða 5% nýrra íbúða, og hagkvæmt húsnæði verða sem næst 30% nýrra íbúða. Húsnæðisstuðningur af hálfu hins opinbera verður endurskoðaður með það að markmiði að tryggja viðráðanlegan húsnæðiskostnað. Þá verði húsaleigulög endurskoðuð þannig að leigjendur njóti aukinnar verndar.

„Það er ljóst að umbætur í húsnæðismálum er ein forsenda kjarasamningsgerðar í haust,“ segir Drífa Snædal, forseti ASÍ en að áfanga sé náð með tillögum hópsins.

Mikil samstaða var í hópnum sem var skipaður þverfaglega með fulltrúum hins opinbera og aðilum vinnumarkaðarins, en eftirtaldir skipuðu starfshóp um aðgerðir og umbætur á húsnæðismarkaði:

  • Anna Guðmunda Ingvarsdóttir, aðstoðarforstjóri HMS, formaður án tilnefningar
  • Gísli Gíslason, formaður án tilnefningar
  • Bjarni Þór Sigurðsson, f.h. Alþýðusambands Íslands
  • Eyjólfur Árni Rafnsson, f.h. Samtaka atvinnulífsins
  • Fannar Jónasson, f.h. Sambands íslenskra sveitarfélaga
  • Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, f.h. félags- og vinnumarkaðsráðherra
  • Henný Hinz, f.h. forsætisráðherra
  • Ingilín Kristmannsdóttir, f.h. innviðaráðherra
  • Ólafur Heiðar Helgason, f.h. fjármála- og efnahagsráðherra
  • Regína Ásvaldsdóttir, f.h. Sambands íslenskra sveitarfélaga
  • Sigríður Ingibjörg Ingadóttir f.h. BSRB, BHM og KÍ.

Niðurstöður starfshópsins í heild sinni.

Glærukynning með niðurstöðum.

Fylgiskjöl með skýrslu.

Tengdar fréttir

  • Opið fyrir umsóknir í Minningarsjóð Eðvarðs Sigurðssonar 2026

    Minningarsjóður Eðvarðs Sigurðssonar auglýsir eftir umsóknum. Sjóðurinn veitir styrki til…

    Ritstjórn

    25. mar 2026

    Eðvarð Sigurðsson
  • ASÍ 110 ára – samstaða verkafólks í rúma öld

    Í dag, 12. mars 2026, eru liðin 110 ár frá…

    Ritstjórn

    12. mar 2026

  • Alþýðusamband Íslands afhendir vörsluútgáfu til Þjóðskjalasafns Íslands

    Í vikunni undirrituðu Alþýðusamband Íslands (ASÍ) og Þjóðskjalasafn Íslands (ÞÍ)…

    Ritstjórn

    12. mar 2026

    Samningurinn undirritaður. Frá vinstri Njörður Sigurðsson aðstoðarþjóðskjalavörður, Eyrún B. Valsdóttir, framkvæmdastjóri ASÍ. og Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ.