Málþing um stöðu erlends verkafólks á Íslandi

Höfundur

Ritstjórn

Efling, SGS og ASÍ efna til málþings um stöðu erlends verkafólks á Íslandi dagana 23.-26. febrúar.

Boðið verður upp á áhugaverða dagskrá í formi fyrirlestra og umræðna. Um fjóra viðburði er að ræða sem verður streymt á Facebook-síðum samtakanna.

Viðburðirnir verða textatúlkaðir á íslensku og ensku.


Þriðjudaginn 23. febrúar kl. 15:00–16:00
Veruleiki erlends fólks á Íslandi
Kristín Heba Gísladóttir, framkvæmdastjóri Vörðu, kynnir helstu niðurstöður nýrrar könnunar varðandi veruleika erlends starfsfólks á íslenskum vinnumarkaði.

Drífa Snædal, forseti ASÍ, stýrir umræðum

• Anna Wojtynska, nýdoktor í mannfræði við HÍ
• Hallfríður Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri Mirru
• Kristín Heba Gísladóttir, framkvæmdastjóri Vörðu


Miðvikudaginn 24. febrúar kl. 15:00–16:00
Harkvinna og varnarleysi á íslenskum vinnumarkaði

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, stýrir umræðum um aðstæður pólsks verkafólks á Íslandi.

• Adda Guðrún Gylfadóttir, félagsfræðingur, HÍ
• Agnieszka Ewa Ziólkowska, varaformaður Eflingar
• Piotr Roicki, fyrrverandi hótelstarfsmaður og félagi í Eflingu

Fimmtudaginn 25. febrúar kl. 15:00–16:00
Bjargvættir í íslenskri ferðaþjónustu

Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar, leiðir dagskrá um framlag erlends verkafólks til íslenskrar ferðaþjónustu

• „Það á ekki að líta á starfsfólk í ferðaþjónustu sem einnota dót” Magnfríður Júlíusdóttir, lektor í mannvistarlandfræði við HÍ
• Upplifun erlends verkafólks í ferðaþjónustu í Covid Arndís Ósk Magnúsdóttir, hjá Rannsóknarsetri Háskólans á Höfn
• Notum tækifærið, byggjum upp fyrirmyndar ferðaþjónustu Guðbjörg Kristmundsdóttir, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis og formaður starfshóps ASÍ um uppbyggingu ferðaþjónustunnar.

Föstudaginn 26. febrúar kl. 13:00–14:00
Vinnumansal – íslenskur veruleiki

Halla Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri ASÍ, stýrir umræðum

• Ragna Björg Guðbrandsdóttir, teymisstjóri framkvæmdateymis um mansal í Bjarkarhlíð
• Logan Smith Sigurðsson, fórnarlamb mansals og formaður Stop the Traffik Iceland
• Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands og fulltrúi í framkvæmdateymi um mansal í Bjarkarhlíð.

Tengdar fréttir

  • Ný skýrsla Vörðu um réttlát umskipti í samgöngum

    Réttlát umskipti er hugtak notað til að lýsa hvernig umbreytingar…

    Ritstjórn

    13. apr 2026

  • Opið fyrir umsóknir í Minningarsjóð Eðvarðs Sigurðssonar 2026

    Minningarsjóður Eðvarðs Sigurðssonar auglýsir eftir umsóknum. Sjóðurinn veitir styrki til…

    Ritstjórn

    25. mar 2026

    Eðvarð Sigurðsson
  • ASÍ 110 ára – samstaða verkafólks í rúma öld

    Í dag, 12. mars 2026, eru liðin 110 ár frá…

    Ritstjórn

    12. mar 2026