ASÍ tekur undir kröfu Landssambands eldri borgara

Höfundur

Ritstjórn

Eftirfarandi ályktun var samþykkt á fundi miðstjórnar ASÍ 16. desember 2020.

Miðstjórn ASÍ tekur undir gagnrýni Landssambands eldri borgara (LEB) á 3,6% hækkun ellilífeyris og telur að sú hækkun gangi gegn markmiðum kjarasamninganna síðasta vor um bætta stöðu hinna tekjulægstu og gegn því markmiði að verja lífskjör í kófinu. Verðbólga mælist 3,5% um þessar mundir og verð á dagvöru hefur hækkað um 7,4% milli ára.

Alþýðusamband Íslands benti á nauðsyn þess í umsögn sinni um fjárlagafrumvarpið að lífeyrir og atvinnuleysistryggingar tækju sömu hækkunum og laun samkvæmt kjarasamningum. Með því að nota viðmið um meðaltaxtaþróun gengur Fjármála- og efnahagsráðuneytið gegn markmiðum kjarasamninganna sem byggðu á því að brýn þörf væri að rétta stöðu hinna tekjulægstu í samfélaginu. Sú þörf er ekki síðri hjá atvinnulausum, öryrkjum og eldri borgurum sem til viðbótar við þrönga fjárhagsstöðu horfast nú í augu við hratt hækkandi verð á matvöru og öðrum innfluttum nauðsynjavörum. Stuðningur við hina tekjulægstu hefur jákvæð efnahagsleg áhrif og mun skila sér í aukinni neyslu.

Miðstjórn ASÍ tekur undir eftirfarandi ályktun stjórnar LEB:

„Stjórn LEB mótmælir harðlega að ellilífeyri hækki aðeins um 3.6% í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2021.
Það er skýlaus krafa LEB að ellilífeyrir hækki um 15.750 kr. vegna ársins 2021 eins og aðrir fá.
Eldri borgarar hafa ekki samningsrétt og verða að treysta að Alþingi fari að lögum við ákvörðun um hækkun ellilífeyris og tryggi sambærilegar hækkanir.“

Tengdar fréttir

  • Alþýðusamband Íslands og Lúðrasveit verkalýðsins hafa endurnýjað samstarf sitt

    Samstarf þessara tveggja aðila á sér djúpar rætur í íslenskri…

    Ritstjórn

    3. jún 2025

  • ASÍ styrkir Samhjálp um páska

    ASÍ styrkir Samhjálp um 400 þúsund krónur nú í aðdraganda…

    Arnaldur Grétarsson

    15. apr 2025

    Kaffistofa Samhjálpar og merki Samhjálpar
  • Opið fyrir umsóknir í Minningarsjóð Eðvarðs Sigurðssonar 2025

    Minningarsjóður Eðvarðs Sigurðssonar auglýsir eftir umsóknum. Sjóðurinn veitir styrki til…

    Arnaldur Grétarsson

    8. apr 2025

    Eðvarð Sigurðsson