Search
Close this search box.
Search
Close this search box.

Kjaradeila FFÍ – Lögskýringum og rangfærslum mótmælt

Í fréttum Stöðvar 2 og RUV fyrr í kvöld var gerð tilraun til þess að lögskýra burt samnings- og verkfallsrétt launafólks. ASÍ hafnar þeim málflutningi með öllu og ítrekar stuðning sinn við Flugfreyjufélag Íslands sem nú stendur í erfiðri kjaradeilu þar sem ekki er deilt um launahækkanir heldur um hve mikið kjör þessarar stóru kvennastéttar skuli rýrð.

Í gildi er kjarasamningur milli FFÍ og Icelandair og gildir hann þar til hann hefur verið endurnýjaður með breytingum eða án þeirra. Á meðan svo er ríkir ekki friðarskylda milli aðila. Tillögur um breytingar voru felldar í atkvæðagreiðslu af félagsmönnum FFÍ. Samkvæmt lögum nr. 80/1938 skal sest að viðræðum að nýju og báðum aðilum er heimilt að knýja á um þær með vinnustöðvun.

Lögskýringar Láru V. Júlíusdóttur hrl. sem komu fram í fréttum RÚV og Stöðvar 2 þann 18.8 2020 eru bæði rangar og fjarstæðukenndar. Samkvæmt þeim er gildandi kjarasamningur fallinn úr gildi og réttarsambandi aðila lokið felli annar hvort aðila tillögur um breytingar. Því til viðbótar er látið að því liggja að þar sem öllum flugfreyjum hafi verið sagt upp og vinnuframlags ekki krafist sé ekki hægt að koma á vinnustöðvun. Sú framganga atvinnurekenda er einfaldlega bönnuð með beinum ákvæðum 4.gr. laga nr. 80/1938 og hefr ekki þau áhrif að við það geti aðrir gengið í störf Flugfreyja og þannig ónýtt löglega boðaða vinnustöðvun. Loks heldur Lára því fram að neyðarréttur byggður á því að fyrirtæki geti ekki greitt umsamin laun samkvæmt gildandi kjarasamningi án breytinga feli það í sér að þar með sé samningurinn fallinn úr gildi með einhliða yfirlýsingu atvinnurekandans.

Fyrir það fyrsta er Icelandair á opinberu framfæri og á enn fyrir skuldum svo neyðarréttur er ekki til staðar. Í öðru lagi hefur atvinnurekandi fjölmörg úrræði í þessari stöðu m.a. verkbannsheimildir á grundvelli laga 80/1938 og auk greiðslustöðvunar og nauðasamninga svo nokkur dæmi séu tekin. Verkann Icelandair geta síðan aðrir atvinnurekendur stutt með samúðaraðgerðum. Lögskýringar Láru V. Júlíusdóttur, ef nokkur fótur væri fyrir þeim, myndu fella úr gildi allar leikreglur laga nr. 80/1938 um gerð og endurnýjun kjarasamninga og hirða stjórnarskrárvarinn verkfallsrétt af íslensku launafólki. Þær eru einnig furðulegt innlegg í umræðu um fordæmalausa árás á stóra kvennastétt sem þegar hefur tekið á sig lækkun launa og verri kjör, langt umfram þær karlastéttir sem þegar höfðu lokið kjarasamningum um launahækkanir við Icelandair

Author

Tengdar fréttir