Search
Close this search box.
Search
Close this search box.

Áherslur ASÍ í menntamálum í tengslum við COVID-19 efnahagskreppuna

Alþýðusamband Íslands leggur áherslu á að breytingar í atvinnulífinu og á vinnumarkaði með nýrri tækni og breyttum atvinnuháttum kalla á nýjar áherslur og breytt vinnubrögð. Þær fela í sér nýjar áskoranir og tækifæri fyrir einstaklinga, fyrirtæki og samfélagið allt. Til framtíðar þarf að styðja við og styrkja atvinnulíf sem byggir á heilbrigðum vinnumarkaði, sanngjörnum umskiptum, sjálfbærni, frumkvæði og nýsköpun.

Efnahagskreppan í kjölfar Covid-19 hefur að einhverju marki ýtt undir örari breytingar og kallar á að efnahags- og atvinnulífið sé byggt upp að nýju með skýra framtíðarsýn. Samfélagið þarfnast góðrar hæfni og þar með öflugs menntakerfis sem er í senn fjölbreytt og sveigjanlegt og öllum aðgengilegt.

ASÍ tekur þátt í samhæfingarhópi félags- og barnamálaráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra sem var falið að skoða stöðu atvinnuleitenda og námsmanna og atvinnu- og menntaúrræði þeirra við breyttar aðstæður. Umboð þess hóps er takmarkað, en ASÍ telur að víðtækari stefnumótunar til lengri tíma sé þörf í menntamálum og hæfniþróun og leggur eftirfarandi atriði til grundvallar þeirri uppbyggingu sem nauðsynleg er:

 Menntakerfið, þ.m.t. símenntun og framhaldsfræðsla, verði kortlagt með hliðsjón af skipulagi, námsframboði, fjármögnun, markhópum, lýðfræði og búsetu. Sérstaklega verði horft til þarfa innflytjenda og annarra viðkvæmra hópa. Í kjölfar kortlagningar verði gerðar tillögur um framtíðarskipulag heildstæðs menntakerfis sem nær til bæði formlegrar og óformlegrar menntunar.

 Ráðist verði í að bæta söfnun tölfræðiupplýsinga og úrvinnslu gagna sem lúta að færnigreiningum. Nauðsynlegt er að fyrir liggi góð þekking, greining og mat á starfstækifærum í einstökum fögum, atvinnugreinum og störfum til nokkurra ára svo að hægt verði að móta heildræna stefnu í mennta-, vinnumarkaðs- og atvinnumálum.

 Aukin áhersla verði lögð á starfsmenntun á öllum skólastigum, samhliða því að stuðla að gagnrýnni hugsun og nýsköpun. Sérstaklega verði nemendum kynnt tækifæri í verk- og tæknigreinum, heilbrigðisþjónustu, velferðarþjónustu og menntakerfinu. Tryggt verði nægilegt framboð á starfsnámi á framhaldsskólastigi og aukið verulega fjármagn til Vinnustaðanámssjóðs til að tryggja betri nýtingu sjóðsins og stöðu þeirra sem eru á námssamningum. Komið verði á fagháskólastigi með formlegum hætti sem m.a. auðveldi aðgang starfsmenntaðra að háskólum. Markmið með þróun fagháskólanáms er að koma til móts við síbreytilegar og vaxandi þarfir atvinnulífsins fyrir fjölbreyttari menntun.

Framboð símenntunar verði aukið með þarfir einstaklinga, vinnumarkaðar og nútímasamfélags í huga. Tryggja þarf að einstaklingar hafi úrræði til að bæta færni þróa nýja færni til að geta skipt um störf og starfsvettvang. Markmiðið er að allir á vinnumarkaði njóti góðs af áhrifum tæknibreytinga í atvinnulífinu.

Raunfærnimat verði aukið á öllum skólastigum og aðgengi einstaklinga að námi og þjálfun í framhaldi af raunfærnimati verði tryggt. Raunfærnimat er eitt öflugasta tækið sem þróað hefur verið til að meta færni fólks á vinnumarkaði og jafnframt hvetja til frekara náms.

 Efla þarf rafræna upplýsingamiðlun um nám og störf og rafræna náms- og starfsráðgjöf þar sem byggt er á styrkleikum einstaklinganna og áhugasviðum, og mögulegum náms- og atvinnutækifærum til framtíðar. Þróa þarf aðferðir til að ná til þeirra einstaklinga sem hafa þörf á að nýta sér þessa þjónustu. Jafnframt þarf að bjóða uppá heildstætt fjarnám sem kost í framhaldsfræðslu, í framhaldsskólum og háskólum.

 Fara þarf strax í endurskoðun laga um menntun og námslána- og styrkjakerfi þannig að hvoru tveggja þjóni markmiðum um eflingu menntunar og tækifæri fyrir alla óháð efnahag. Í breyttu umhverfi mennta- og atvinnulífs þurfa lögin að vera í samræmi við nýjar aðstæður. Nauðsynlegt er að aðilar vinnumarkaðar eigi formlega aðild að þeirri endurskoðun.

 Að þegar í stað verði skipaður starfshópur á vegum stjórnvalda sem verði falið að móta hæfnistefnu fyrir Ísland líkt og í nágrannalöndunum. Í hópnum eigi sæti aðilar vinnumarkaðar, menntakerfis og stjórnvalda. Markmið stefnunnar verði að tryggja að framboð af námi og fræðslu sé í samræmi við þarfir samfélagsins hverju sinni og hagsmuni vinnandi fólks. Jafnframt að mótuð verði stefna með aðgerðum, til að bæta samspil menntakerfis og vinnumarkaðar.

Author

Tengdar fréttir