Yfirlýsing SGS – Skiljum engan eftir út undan

Höfundur

Ritstjórn
Starfsgreinasamband Íslands ítrekar nauðsyn þess að aðgerðir stjórnvalda í kjölfar Covid-19 nái til allra, og að afkomuöryggi hópa, s.s. einstaklinga með undirliggjandi sjúkdóma, óléttra kvenna og foreldra sem hafa misst úr vinnu vegna takmarkaðs leik- og grunnskólastarfs, verði tryggt. Það er aldrei hægt að una við það að hópar félagsmanna okkar, sem hvað veikast standa, séu skildir eftir í aðgerðum stjórnvalda. 

Formannafundur Starfsgreinasambandsins minnir jafnframt á mikilvægi þess að álagsgreiðslur til framlínustarfsfólks í heilbrigðisgeiranum nái til allra sem þar starfa t.d. við þrif, umönnun og aðhlynningu. Þetta fólk hefur brugðist við erfiðum og krefjandi aðstæðum af miklum dugnaði og elju og á svo sannarlega skilið að fá sinn skerf af umræddum álagsgreiðslum. Þetta á einnig við um starfsfólk undirverktaka, einkarekina hjúkrunarheimila og annara, sem sinnir mörgum af þessum störfum á einstökum stofnunum. Skiljum engan út undan.

Tengdar fréttir

  • ASÍ styrkir Samhjálp um jólin 2025

    Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, afhenti Samhjálp styrk upp á…

    Ritstjórn

    12. des 2025

  • Útgáfufundur Kjaratölfræðinefndar 27. nóv

    Nýjasta skýrsla Kjaratölfræðinefndar verður kynnt í húsakynnum ríkissáttasemjara fimmtudaginn 27. nóvember…

    Ritstjórn

    27. nóv 2025

  • Eftirlitsfulltrúar í námsferð til Helsinki

    Starfsdagar eftirlitsfulltrúa Alþýðusambands Íslands og stéttarfélaganna fóru fram í Helsinki…

    Kristjana Fenger

    7. nóv 2025