Kristján Bragason kosinn framkvæmdastjóri EFFAT

Höfundur

Ritstjórn

Kristján Bragason, fyrrverandi framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins, var í gær kjörinn framkvæmdastjóri EFFAT (European Federation of Food, Agriculture and Tourism Trade Unions) á þingi samtakanna. EFFAT eru samtök launafólks í matvæla-, ferðaþjónustu og landbúnaði í Evrópu og hefur innan sinna vébanda 1,2 milljónir félagsmanna.

Framkvæmdastjórinn er kosinn í beinni kosningu af þingfulltrúum og var kjör Kristjáns einróma. Kristján Bragason hefur undanfarin ár verið framkvæmdastjóri Nordisk Union (NU-HRCT). Hér er trúlega um eitt æðsta embætti sem Íslendingur hefur verið kosinn til að gegna innan alþjóðlegrar verkalýðshreyfingar. Kristján er fulltrúi SGS á þinginu en megináherslur þess núna snúa að starfsumhverfi og launakjörum hótelstarfsmanna og að allir eigi að njóta sömu réttinda á vinnumarkaði.

Kristján Bragason var í viðtali við Hlaðvarp ASÍ fyrir nokkrum dögum. Smelltu hér til að hlusta (16. mínútur)

Tengdar fréttir

  • Eftirlitsfulltrúar í námsferð til Helsinki

    Starfsdagar eftirlitsfulltrúa Alþýðusambands Íslands og stéttarfélaganna fóru fram í Helsinki…

    Kristjana Fenger

    7. nóv 2025

  • Vel heppnað þing ASÍ-UNG

    ASÍ-UNG hélt sitt 11. þing föstudaginn 17. október og var…

    Ritstjórn

    20. okt 2025

  • Skýrsla forseta ASÍ 2025 komin út

    Skýrsla forseta fyrir árið 2025 er að venju efnismikil og…

    Arnaldur Grétarsson

    17. okt 2025