Stýrivextir lækka í 3,25%

Höfundur

Ritstjórn

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans um 0,25%. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 3,25%. Stýrivextir hafa þar með lækkað um 1,25% frá undirritun kjarasamninga í byrjun apríl.

Samkvæmt bráðabirgðatölum þjóðhagsreikninga hélt áfram að hægja á hagvexti á fyrri hluta þessa árs þótt hann hafi verið heldur meiri en gert var ráð fyrir í ágústhefti Peningamála. Meiri vöxtur skýrist einkum af hagstæðara framlagi utanríkisviðskipta þar sem eftirspurn beinist í meira mæli að innlendri framleiðslu og vegur það upp á móti samdrætti í útflutningi. Leiðandi vísbendingar benda til þess að áfram muni hægja á vexti efnahagsumsvifa en sjá má merki þess að þjóðarbúið sé mögulega að ná viðspyrnu.

Verðbólga mældist 3,1% á þriðja ársfjórðungi og hjaðnaði milli fjórðunga. Undirliggjandi verðbólga jókst hins vegar milli mánaða í september. Mæld verðbólga var lítillega minni en spáð var í ágúst og horfur eru á að hún hjaðni hraðar en gert var ráð fyrir. Gengi krónunnar hefur hækkað og verðbólguvæntingar lækkað frá síðasta fundi nefndarinnar. Taumhald peningastefnunnar hefur því aukist lítillega.

Nýleg þróun bendir til þess að efnahagsumsvif hafi verið þróttmeiri en gert hefur verið ráð fyrir. Hins vegar eru horfur framundan óvissar, sérstaklega í alþjóðlegum efnahagsmálum. Því gæti dregið hraðar úr innlendum hagvexti en nú er búist við.

Peningastefnan mun á næstunni ráðast af samspili þróunar efnahagsumsvifa annars vegar og verðbólgu og verðbólguvæntinga hins vegar.

Tengdar fréttir

  • Ný skýrsla Vörðu um réttlát umskipti í samgöngum

    Réttlát umskipti er hugtak notað til að lýsa hvernig umbreytingar…

    Ritstjórn

    13. apr 2026

  • Opið fyrir umsóknir í Minningarsjóð Eðvarðs Sigurðssonar 2026

    Minningarsjóður Eðvarðs Sigurðssonar auglýsir eftir umsóknum. Sjóðurinn veitir styrki til…

    Ritstjórn

    25. mar 2026

    Eðvarð Sigurðsson
  • ASÍ 110 ára – samstaða verkafólks í rúma öld

    Í dag, 12. mars 2026, eru liðin 110 ár frá…

    Ritstjórn

    12. mar 2026