Verðbólga lækkar lítillega milli mánaða

Höfundur

Ritstjórn

Ársverðbólgan mælist nú 3,3% (3,0% án húsnæðis) samanborið við 3,6% í maí. Vísitala neysluverðs hækkar um 0,38% milli mánaða en vísitala án húsnæðis hækkar örlítið minna eða um 0.37%.

Mest áhrif til hækkunar á verðlagi í júní hefur 0,3% hækkun á húsnæði, hita og rafmagni (áhrif á vísitölu 0,10%) en hún er að mestu tilkomin vegna hækkana á viðhaldi og viðgerðum. Ferðir og flutningar hafa næst mest áhrif til hækkunar á vísitölunni eða 0,09% en liðurinn hækkar um 0,6% milli mánaða. Mestu munar þar um 6,5% hækkun á flugfargjöldum en á móti vegur 1,3% lækkun á bensíni og olíu. Tómstundir og menning hækkar um 0,7% (0,07% áhrif) frá því í maí en 3,5% hækkun á pakkferðum til útlanda vegur þar þyngst. Þá hækka aðrar vörur og þjónusta um 0,8% milli mánaða (áhrif 0,05%) sem má að mestu rekja til hækkana á tryggingum um 0,7% en einnig til hækkana á ýmsum snyrtivörum. Verð á mat og drykkjarvörur hækkar um um 0,3% frá fyrra mánuði sem hefur 0,06% áhrif til hækkunar á verðlagi í mánuðinum. Húsgögn og heimilisbúnaður hækka um 0,8% milli mánaða (áhrif 0,04%) og skýrist það að mestu af hækkunum á stórum heimilistækjum.

Mest áhrif til lækkunar á verðlagi í júní hefur 1% lækkun á hjá hótelum og veitingastöðum (-0,1% vísitöluáhrif) sem skýrist einkum af 3,8% lækkun á skyndibita og tilbúnum réttum. Póstur og sími lækkar einnig sem skýrist af 8,8% lækkun á heimilissímaþjónustu og 4,3% lækkun á farsímaþjónustu.

Tengdar fréttir

  • Alþýðusamband Íslands og Lúðrasveit verkalýðsins hafa endurnýjað samstarf sitt

    Samstarf þessara tveggja aðila á sér djúpar rætur í íslenskri…

    Ritstjórn

    3. jún 2025

  • ASÍ styrkir Samhjálp um páska

    ASÍ styrkir Samhjálp um 400 þúsund krónur nú í aðdraganda…

    Arnaldur Grétarsson

    15. apr 2025

    Kaffistofa Samhjálpar og merki Samhjálpar
  • Opið fyrir umsóknir í Minningarsjóð Eðvarðs Sigurðssonar 2025

    Minningarsjóður Eðvarðs Sigurðssonar auglýsir eftir umsóknum. Sjóðurinn veitir styrki til…

    Arnaldur Grétarsson

    8. apr 2025

    Eðvarð Sigurðsson