Iðandi grasrót

Höfundur

Ritstjórn

Grasrót hreyfingarinnar er kraumandi pottur hugmynda og stórra verkefna um þessar mundir. Ég naut þess heiðurs að vera við setningu þings Rafiðnaðarsambands Íslands annars vegar og Samiðnar hins vegar en bæði þingin standa nú yfir. Rafiðnaðarmenn ákváðu á sínu þingi að leggja áherslu á jafnrétti kynjanna og öruggt starfsumhverfi og voru með Rakarastofuráðstefnu í gær. Það er ánægjulegt þegar félög þar sem karlar eru í miklum meirihluta taka jafnréttismál í fangið. Á þingi Samiðnar eru stóru málin líka á dagskrá en fjórða iðnbyltingin og loftslagsmálin verða rædd þar í dag og á morgun. Verkalýðshreyfingunni er ekkert óviðkomandi og sú mikla þátttaka sem er á fundum þar sem kjarasamningar iðnaðarmanna eru kynntir gefur mynd af virkri grasrót sem er full af lífi.

En við urðum óþægilega vör við það líka í vikunni að við þurfum stöðugt að verja þá stöðu sem við höfum samið um. Hóteleigandi ákvað að svipta alla umframgreiðslur til að þurfa nú örugglega ekki að greiða umsamdar launahækkanir og sýnir svo ekki verði um villst að sumir atvinnurekendur ætla að afsala sér ábyrgð á bættum kjörum starfsmanna sinna. Það er algerlega óþolandi og þessum atvinnurekendum til háborinnar skammar. Við ætlumst til þess að samtök atvinnurekenda geri sínum félagsmönnum grein fyrir því að til þess að samningar skili tilætluðum árangri verða allir að leggjast á árarnar og enginn á að vera stikkfrí eða koma sér hjá að bæta kjör starfsfólks.

Kjarasamningarnir sem iðnaðarmenn undirrituðu í síðustu viku eru nú til afgreiðslu í atkvæðagreiðslu félagsmanna. Áhugasamir um samningana geta fengið stuttu útgáfuna í nýju hlaðvarpi ASÍ í gegnum itunes, Spotify eða Google podcast. Þar kennir líka alls konar annars góðgætis eins og viðtöl við hvunndagshetjur hreyfingarinnar og fleira og fleira. Það er ætlunin að halda áfram að kynna starf okkar, áherslur og hugmyndir á þessum vettvangi og ég hvet allt áhugafólk um verkalýðs- og kjaramál að gerast áskrifendur að Hlaðvarpi ASÍ á fyrrnefndum veitum.

Njótið vorsins og helgarinnar,
Drífa

Tengdar fréttir

  • Ný skýrsla Vörðu um réttlát umskipti í samgöngum

    Réttlát umskipti er hugtak notað til að lýsa hvernig umbreytingar…

    Ritstjórn

    13. apr 2026

  • Opið fyrir umsóknir í Minningarsjóð Eðvarðs Sigurðssonar 2026

    Minningarsjóður Eðvarðs Sigurðssonar auglýsir eftir umsóknum. Sjóðurinn veitir styrki til…

    Ritstjórn

    25. mar 2026

    Eðvarð Sigurðsson
  • ASÍ 110 ára – samstaða verkafólks í rúma öld

    Í dag, 12. mars 2026, eru liðin 110 ár frá…

    Ritstjórn

    12. mar 2026