Alþýðusamband Íslands leitar að hagfræðingi til starfa

Höfundur

Ritstjórn

Alþýðusamband Íslands leitar að metnaðarfullum hagfræðingi til starfa. Starf hagfræðings felst m.a. í rannsóknum og ráðgjöf á sviði efnahags- og kjaramála auk úttekta og tillögugerðar vegna vinnu samtakanna að velferðar-, skatta- og atvinnumálum. ASÍ leggur áherslu á að umsækjandi hafi faglegan metnað, sýni frumkvæði og geti starfað sjálfstætt en eigi jafnframt auðvelt með að vinna í teymi. Hann sé fær í mannlegum samskiptum og eigi auðvelt með að tjá sig í ræðu og riti.

Starfs- og ábyrgðarsvið

  • Rannsóknir á sviði efnahags- og kjaramála
  • Greining og úrvinnsla á hagtölum og tölfræði
  • Skrif á umsögnum fyrir hönd ASÍ í tilteknum málaflokkum
  • Samskipti við skrifstofur aðildarfélaga og landssambanda
  • Þátttaka í málefnanefndum ASÍ
  • Þátttaka í samstarfi ASÍ við erlend systursamtök og alþjóðasamtök stéttarfélaga
  • Frétta- og greinarskrif
  • Kynningarmál og fræðsla

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólapróf í hagfræði eða önnur menntun sem nýtist í starfið. Framhaldsmenntun er æskileg
  • Reynsla af þjóðhagsútreikningum, efnahagsspágerð og gerð kjarasamninga er æskileg
  • Þekking á tölfræði og hæfni í útreikningum og úrvinnslu tölulegra gagna
  • Kostur að hafa færni í meðferð gagna t.d. gegnum eViews, PowerBI og R
  • Gott vald á ensku og einu Norðurlandamáli
  • Færni í mannlegum samskiptum, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

Umsókn ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist á:
Róbert E. Farestveit á netfangið robertf@asi.is fyrir 18. nóvember 2022.

Tengdar fréttir

  • Eftirlitsfulltrúar í námsferð til Helsinki

    Starfsdagar eftirlitsfulltrúa Alþýðusambands Íslands og stéttarfélaganna fóru fram í Helsinki…

    Kristjana Fenger

    7. nóv 2025

  • Vel heppnað þing ASÍ-UNG

    ASÍ-UNG hélt sitt 11. þing föstudaginn 17. október og var…

    Ritstjórn

    20. okt 2025

  • Skýrsla forseta ASÍ 2025 komin út

    Skýrsla forseta fyrir árið 2025 er að venju efnismikil og…

    Arnaldur Grétarsson

    17. okt 2025