Ályktun miðstjórnar Alþýðusambands Íslands um viðskiptabann gagnvart Ísrael

Höfundur

Ritstjórn

Almenningur í Palestínu hefur mátt þola ólýsanlegar þjáningar í tengslum við ólögmætt árásar- og landvinningastríð Ísraela á Gaza, s.l. tæp tvö ár. Nú er svo komið að Ísraelsher hefur lokað fyrir alla neyðaraðstoð og matarflutninga inn á Gazasvæðið og heimurinn horfir upp á um tværmilljónir manna, þar af stórum hluta börn, sveltar hægt og bítandi til dauða. Í mars árið 2024 komst Alþjóðadómstóllinn að þeirri niðurstöðu að Ísraelsríki sé líklega (e. plausible) að fremja þjóðarmorð og í júlí á sama ári, úrskurðaði sami dómstóll að herseta Ísraela á palestínsku landi væri ólögleg. 

Miðstjórn hefur þegar sent frá sér þrjár ályktanir í tengslum við átökin á sama tímabili þar sem óhæfuverk Ísraela hafa verið fordæmd og kallað hefur verið eftir raunverulegum aðgerðum af hálfu íslenskra stjórnvalda.  

Þann 9. maí samþykkti norska alþýðusambandið (LO) róttæka ályktun um Palestínu á þingi sínu. Yfirlýsingunni svipar mjög til þeirra sem miðstjórn ASÍ hefur sent frá sér um sömu mál undanfarið. 

  • Krafist er sniðgöngu á Ísrael vegna hernaðaraðgerða landsins í Palestínu 
  • Þess er krafist að norski lífeyrissjóðurinn (Statens pensjonfund utland), fyrirtæki og fjármálastofnanir hætti öllum viðskiptum við fyrirtæki sem styðja við ísraelska hernámið. 
  • Krafa er um lagasetningu sem banni viðskipti og fjárfestingar í Ísrael. 
  • LO krefst þess að norska ríkið beiti sér á virkan hátt til þess að binda enda á hernám Ísraels og umsátrið við Gaza. 
  • Verði hernáminuekki lokið fyrir september 2025 (í samræmi við niðurstöðu Alþjóðadómstólsins), mun LO beita sér fyrir því að Noregur taki frumkvæði að alþjóðlegri efnahagslegri sniðgöngu gegn Ísrael. 

Miðstjórn ASÍ telur fulla ástæðu til þess að taka undir gagnrýni og kröfur LO í Noregi og gerir það með þessari ályktun. 

Á sama tíma er full ástæða til þess að fordæma ákvörðun Ríkiskaupa um að endurnýja samninga við ísraelska greiðslumiðlunarfyrirtækið Rapyd til tveggja ára, þrátt fyrir áberandi ákall frá stórum hluta almennings um hið gagnstæða og þrátt fyrir yfirlýstan stuðning forsvarsmanna fyrirtækisins við þær aðgerðir Ísraelshers sem Alþjóðadómstóllinn hefur lýst sem líklegu þjóðarmorði. 

Lýsa má yfir ánægju með frumkvæði forsætisráðherra, Kristrúnar Frostadóttur, að leiða saman ríki sem taka vilja afstöðu gegn yfirstandandiherför Ísraela gegn mannúðinni, en gera þarf margfalt meira, og tafarlaust. Tíminn vinnur ekki með sveltandi börnum. 

Alþýðusamband Íslands kallar eftir því að allar mögulegar leiðir verði reyndar til þess að binda endaá það martraðarástand sem ríkir fyrir botni Miðjarðarhafs og til þess að Palestínumenn megi njóta fullra mannréttinda og virðingar til jafns við aðra í heimalandi sínu. 

Tengdar fréttir

  • Miðstjórn ASÍ styður breytingar á veiðigjöldum 

    Miðstjórn Alþýðusambands Íslands hefur samþykkt eftirfarandi ályktun: „Miðstjórn Alþýðusambands Íslands…

    Ritstjórn

    3. apr 2025

  • Ný ríkisstjórn fordæmi glæpaverk Ísraela

    Miðstjórn Alþýðusambands Íslands hefur samþykkt eftirfarandi ályktun: Miðstjórn Alþýðusambands Íslands…

    Ritstjórn

    10. jan 2025

  • Siðlausri skerðingu lífeyrisréttinda mótmælt

    Miðstjórn Alþýðusambands Íslands hefur samþykkt eftirfarandi ályktun: Miðstjórn Alþýðusambands Íslands…

    Ritstjórn

    19. sep 2024