Ársskýrsla Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins

Höfundur

Ritstjórn

„Þarfir einstaklingsins eru ávallt í fyrirrúmi innan framhaldsfræðslukerfisins og er það hlutverk þess að styðja og vísa fólki áleiðis í sinni færniþróun. Þeirri sýn má aldrei breyta.“ segir Eyrún Björk Valsdóttir, framkvæmdastjóri ASÍ og stjórnarformaður Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins í nýrri ársskýrslu FA.

Fræðslumiðstöð atvinnulífsins er samstarfsvettvangur í fullorðins- og framhaldsfræðslu á íslenskum vinnumarkaði. Alþýðusambandið hefur ávallt lagt mikla áherslu á menntun og er einn eigenda FA, ásamt SA, BSRB, SÍS og Fjármála og efnahagsráðuneytinu. Megin hlutverk FA er veita þeim sem ekki hafa lokið námi frá framhaldsskóla tækifæri til að afla sér menntunar og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði. Þar sem um er að ræða um fjórðung alls fólks á vinnumarkaði er ljóst að verkefnin eru bæði umfangsmikil og fjölbreytt.

Í ársskýrlslunni má meðal annars lesa sér til um Fagbréf atvinnulífsins sem kynnt voru í nóvember síðastliðnum en þau eru staðfesting á færni starfsfólk til að seinna ákveðnu starfi. Fagbréfinu eru afrakstur samstarfs FA, ASÍ og SA en þau eru gefin út og vottuð af FA.

Í skýrslunni er einnig fjallað um önnur verkefni s.s. raunfærnimat, námsskrár og hæfnigreiningar.

Skýrsluna má nálgast hér.

Tengdar fréttir

  • Ný skýrsla Vörðu um réttlát umskipti í samgöngum

    Réttlát umskipti er hugtak notað til að lýsa hvernig umbreytingar…

    Ritstjórn

    13. apr 2026

  • Opið fyrir umsóknir í Minningarsjóð Eðvarðs Sigurðssonar 2026

    Minningarsjóður Eðvarðs Sigurðssonar auglýsir eftir umsóknum. Sjóðurinn veitir styrki til…

    Ritstjórn

    25. mar 2026

    Eðvarð Sigurðsson
  • ASÍ 110 ára – samstaða verkafólks í rúma öld

    Í dag, 12. mars 2026, eru liðin 110 ár frá…

    Ritstjórn

    12. mar 2026