ASÍ og Jafningjafræðslan í samstarf ellefta árið í röð

Höfundur

Ritstjórn

Alþýðusamband Íslands og Jafningjafræðslan hafa gert með sér samkomulag um samstarf í sumar. Samvinna ASÍ og Jafningjafræðslunnar hófst árið 2009 og hefur það tekist afar vel. Leiðbeinendur Jafningjafræðslunnar munu í sumar uppfræða krakka í Vinnuskóla Reykjavíkur, Vinnuskóla Kópavogs og Vinnuskóla Seltjarnarness og víðar um landið um verkalýðshreyfinguna og helstu réttindamál á vinnumarkaði. Auk þess styrkir ASÍ starf Jafningjafræðslunnar fjárhagslega. Alþýðusambandinu er heiður að því að koma að því góða starfi sem Jafningjafræðslan ynnir af hendi.

Jafningjafræðslan er forvarnarstarf unnið af ungu fólki þar sem fræðslan byggist á að bæta sjálfsmynd unga fólksins. Rætt er um vinnuréttindi, vímuefni, átraskanir, kynlíf, kynferðisofbeldi, samkynhneigð, einelti, fordóma og fleira forvarnartengt. Jafningjafræðslan nær til 3-4000 ungmenna á aldrinum 15-17 ára á hverju ári.

Mynd: Drífa Snædal, forseti ASÍ ásamt Boga Guðbrandi Hallgrímssyni frá Jafningjafræðslunni eftir undirskrift samstarfssamningsins

Tengdar fréttir

  • Eftirlitsátak í ferðaþjónustu: Þörf á áframhaldandi samræmdu eftirliti

    Vísbendingar eru um gerviverktöku í ferðaþjónustu og þóknun verktaka er…

    Ritstjórn

    12. feb 2026

  • Heimilt að takmarka starfsemi erlendra rútufyrirtækja

    Evrópudómstóllinn kvað þann 16. október 2025 upp dóm í máli C-482/23 þar…

    Ritstjórn

    30. jan 2026

  • Rótgróinn ójöfnuður hamlar félagslegu réttlæti

    13. 01.26 Þrátt fyrir miklar framfarir í menntun, verulegan árangur…

    Ritstjórn

    13. jan 2026