Alþýðusamband Íslands (ASÍ) telur fyrirliggjandi frumvarp um breytingu á lögum til að bregðast við auknu umfangi skammtímaleigu íbúðarhúsnæðis til ferðamanna ekki ganga nógu langt.
Þetta kemur fram í umsögn ASÍ um frumvarp til laga um breytingu á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald nr.85/2007. Markmið laganna er að draga úr framboði á íbúðarhúsnæði til handa ferðamönnum í skammtímaleigu sem ýtt hefur undir þenslu á húsnæðismarkaði og dregið úr framboði húsnæðis til langtímaleigu.
Í umsögninni er bent á að frumvarpið gangi mun skemur í takmörkun á skammtímaleigu en í mörgum borgum Evrópu sem glímt hafi við sambærilegan vanda.
Í umsögninni segir:
„Að mati ASÍ hefði þurft að taka stærri skref sem myndu hafa mæta þeim bráðavanda sem nú ríkir á húsnæðismarkaði.“
Þrátt fyrir þessa gagnrýni lýsir Alþýðusambandið yfir stuðningi við frumvarpið og hvetur til þess að það verði að lögum.
Heimagisting endurskilgreind og rekstrarleyfi tímabundin
Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á núgildandi lögum sem felast einkum í tvennu. Annars vegar er heimagisting endurskilgreind og afmörkuð við lögheimili einstaklings og eina aðra fasteign í eigu viðkomandi utan þéttbýlis. Hins vegar eru rekstrarleyfi í íbúðarhúsnæði innan þéttbýlis gerð tímabundin til fimm ára.
ASÍ fagnar áformum um að þrengja að heimagistingu en telur að lengra hefði þurft að ganga hvað varðar rekstrarleyfi í íbúðarhúsnæði. Rakið er hvernig aukning á skammtímaleigu íbúðarhúsnæðis í atvinnurekstrarskyni, bæði á vegum einstaklinga og lögaðila, hafi aukið ásælni fjárfesta í íbúðarhúsnæði, dregið úr framboði þess og ýtt undir þenslu á húsnæðismarkaði.
Í umsögninni segir að eðlilegt væri að fella niður útgefin rekstrarleyfi eða stytta fimm ára tímabindinguna verulega.
Hér má nálgast umsögnina í heild.