Drífa Snædal – Öndum rólega og þvoum okkur um hendur

Höfundur

Drífa Snædal

Í vikunni hef ég fylgst af aðdáun með viðbrögðum okkar færasta fólks við veiruógninni. Staðföst, fumlaus og traust viðbrögð til að minnka skaðann og verja okkur sem hýsum þessa eyju. Vonandi tekst að draga úr hraða smita svo hægt sé að sinna þeim sem veikjast og innviðirnir standist þessa ágjöf. Flestir vinnustaðir, félagasamtök og opinberar stofnanir vinna að vörnum og í gær náðu aðilar vinnumarkaðarins samkomulagi ásamt stjórnvöldum um hvernig megi tryggja afkomu fólks sem þarf að fara í sóttkví. Vinnustaðir er sá vettvangur þar sem flestir hittast og til mikils að vinna að fólk virði sóttkví án þess að hafa áhyggjur af afkomu sinni. Ég fagna því samkomulaginu sem lesa má hér.

En það munu koma upp margar spurningar og nú þegar verða öll stéttarfélög á landinu vör við áhyggjur tengdar ástandinu. Með fyrrnefndu samkomulagi var greitt úr helstu viðfangsefnunum. Þrátt fyrir fáheyrt ástand í samfélaginu heldur lífið áfram og vikan var um margt viðburðarík. Á mánudag voru kynnt frumvarpsdrög að nýjum húsaleigulögum sem munu styrkja réttindi leigjenda svo um munar. Nú heyrast raddir að lagasetningin muni hafa slæm áhrif á þá sem síst skyldi. Þar er sleginn kunnuglegur tónn sem heyrist iðulega þegar réttarstaða þeirra sem höllum fæti standa er löguð. Ný húsaleigulög sækja fyrirmynd til annarra landa sem hefur tekist betur en okkur að vernda húsnæðisöryggi fólks. Á vettvangi ASÍ voru umhverfismál og jöfnuður til umfjöllunar í vikunni auk þess sem alþjóðlegur baráttudagur vinnandi kvenna (sem í raun er á sunnudaginn) var haldinn á fimmtudag með góðri umfjöllun um verkefnin framundan og endurskoðun jafnréttislaga.

Úr Karphúsinu berast svo þær fréttir að fólk situr við að finna lausnir og eru það góðar fréttir. Allir sterkir straumar til okkar fólks sem situr nú í samningaviðræðum.

Þvoið, sprittið og njótið helgarinnar,
Drífa

Tengdar fréttir

  • ASÍ styrkir Samhjálp um jólin 2025

    Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, afhenti Samhjálp styrk upp á…

    Ritstjórn

    12. des 2025

  • Útgáfufundur Kjaratölfræðinefndar 27. nóv

    Nýjasta skýrsla Kjaratölfræðinefndar verður kynnt í húsakynnum ríkissáttasemjara fimmtudaginn 27. nóvember…

    Ritstjórn

    27. nóv 2025

  • Eftirlitsfulltrúar í námsferð til Helsinki

    Starfsdagar eftirlitsfulltrúa Alþýðusambands Íslands og stéttarfélaganna fóru fram í Helsinki…

    Kristjana Fenger

    7. nóv 2025