Smelltu hér til að horfa á streymið (fundurinn hefst kl. 8.30 þann 19. október)
Eru Íslendingar lélegir neytendur?
Samkeppni og neytendavernd – hagur neytenda og fyrirtækja
Morgunverðarfundur verðlagseftirlits ASÍ og Neytendasamtakanna
Þriðjudagur 19. október kl. 08:30-10:00
Grand Hótel, Gullteigi B.
Léttur morgunverður í boði frá kl. 08:00.
Hvaða áhrif hefur skortur á samkeppni, neytendavernd og eftirliti með viðskiptaháttum á atvinnulíf, viðskipti, verðlag, jöfnuð og lífskjör? Hvað má betur fara í þessum málum hér á landi?
Á fundinum verður fjallað um hlutverk, stöðu og umhverfi þeirra opinberu stofnanna og félagasamtaka sem fara með samkeppnis- og neytendamál hér á land og áherslur stjórnvalda í málaflokknum. Einnig verður fjallað um fyrirkomulag þessara mála í nágrannalöndunum.
Dagskrá:
08:30 – 08:40: Samkeppni, fjórða iðnbyltingin og vinnumarkaðurinn
Auður Alfa Ólafsdóttir, verkefnastjóri verðlagseftirlits ASÍ
08:40 – 08:55: Neytendavernd á Norðurlöndunum
Daði Ólafsson, sérfræðingur hjá atvinnuvega og nýsköpunarráðuneytinu
08:55 – 09:10: Af hverju samkeppniseftirlit?
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins
09:10 – 09:25: Sókn í stað samþjöppunar
Gylfi Magnússon, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands
09:30 – 10:00: Pallborðsumræður
Í pallborði:
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, Þórunn Anna Árnadóttir, forstjóri Neytendastofu, Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna og Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu.
Allir velkomnir!