Forsetapistill – Stöðvum launaþjófnað

Höfundur

Drífa Snædal

Formaður Samtaka atvinnulífsins tekur sér mikið skáldaleyfi í grein sinni í Fréttablaðinu, 19. ágúst sl. og vænir ASÍ um að standa í vegi fyrir því að böndum sé komið á launaþjófnað á íslenskum vinnumarkaði og hann upprættur. Í greininni fullyrðir formaðurinn að vinna við frumvarp um aðgerðir gegn félagslegum undirboðum og brotastarfsemi á vinnumarkaði hafi tafist vegna stefnubreytingar af hálfu ASÍ „sem lagði stein í götu frumvarpsins“. Þarna er formaðurinn að vísa til kröfu ASÍ um að atvinnurekendur sem stunda launaþjófnað þurfi ekki eingöngu að greiða starfsmönnum launin sem stolið var heldur bæta þeim skaðann sem þeir urðu fyrir. Tillaga ASÍ er að höfuðstóll launakröfunnar tvöfaldist og að þannig sé lagt févíti á launaþjófinn.

Þessi krafa ASÍ hefur legið fyrir lengi og var sett formlega fram árið 2018 í starfshópi félags- og barnamálaráðherra um félagsleg undirboð og brotastarfsemi á vinnumarkaði, sem bæði ASÍ og SA áttu aðild að. Málið fékkst ekki útrætt og það virðist standa eitthvað í fulltrúum atvinnurekenda að tryggja að viðurlög fylgi brotum. Hins vegar er fjallað um þennan þátt í skýrslu starfshópsins, en þar segir: „Ekki náðist að ræða að neinu marki tillögur Alþýðusambands Íslands sem miða að því að þeim starfsmönnum sem verða fyrir launaþjófnaði sé bættur skaðinn með hlutlægri bótareglu. Jafnframt verði skoðað að slík mál fái sérstakan forgang í réttarkerfinu.“
Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar í tengslum við Lífskjarasamninginn byggir að hluta til á skýrslu þessa samstarfshóps og þar segir líka: „Heimildir til refsinga verði auknar, í samráði við aðila vinnumarkaðarins, ef atvinnurekandi brýtur gegn lágmarkskjörum launamanns.“
Tillögur ASÍ hafa staðið óbreyttar um nokkurn tíma og það ætti formanni SA að vera fullkunnugt um, að því gefnu að talsamband sé milli hans og starfsfólks samtakanna.

Það er skoðun ASÍ að beiting hlutlægrar bótareglu eða févítis í baráttunni við launaþjófnað á íslenskum vinnumarkaði geti skipt sköpum við að stöðva óásættanlega framgöngu atvinnurekenda í samskiptum við launafólk. Slík regla muni draga úr brotastarfsemi og tryggja betur réttindi og stöðu þess launafólks sem verður fyrir launaþjófnaði og gera vinnumarkaðinn heilbrigðari.
Um kröfu ASÍ hefur ekki fengist nein efnisleg umræða við Samtök atvinnulífsins þrátt fyrir ítrekaðar óskir Alþýðusambandsins. SA hefur ekki komið fram með efnisleg rök gegn tillögum ASÍ og satt að segja ekkert innlegg í þessa umræðu annað en að drepa henni á dreif, eins og formaðurinn gerir í grein sinni í Fréttablaðinu.

Eftir stendur krafa ASÍ um að leitað verði allra leiða til að stöðva launaþjófnað á íslenskum vinnumarkaði. Þar mættu fleiri koma að.
Góða helgi,
Drífa

Tengdar fréttir

  • Ný skýrsla Vörðu um réttlát umskipti í samgöngum

    Réttlát umskipti er hugtak notað til að lýsa hvernig umbreytingar…

    Ritstjórn

    13. apr 2026

  • Opið fyrir umsóknir í Minningarsjóð Eðvarðs Sigurðssonar 2026

    Minningarsjóður Eðvarðs Sigurðssonar auglýsir eftir umsóknum. Sjóðurinn veitir styrki til…

    Ritstjórn

    25. mar 2026

    Eðvarð Sigurðsson
  • ASÍ 110 ára – samstaða verkafólks í rúma öld

    Í dag, 12. mars 2026, eru liðin 110 ár frá…

    Ritstjórn

    12. mar 2026