Förum ekki í sama farið – byggjum upp heilbrigðari atvinnugrein

Höfundur

Drífa Snædal

Nú er beðið eftir að ferðaþjónustan fari á fullt aftur og greiningardeildirnar hamast við að finna tímasetninguna. Verður það næsta sumar eða ekki fyrr en næsta haust? Hvenær verður hægt að endurræsa ferðaþjónustuna? Í umræðunni liggja væntingar um afturhvarf til þess sem var; góðærisins, gjaldeyristeknanna og hás atvinnustigs. Og vissulega litu efnahagsreikningarnir betur út fyrir ári síðan. En það er eitt sem gleymdist í allri stefnumótun stjórnvalda varðandi ferðaþjónustuna – starfsfólkið. Ferðaþjónustan byggir, umfram margar aðrar greinar, á fjölda starfsfólks, viðmóti þess og þjónustulund. Nú er lag að fara ekki í sama farið heldur endurræsa þessa mikilvægu atvinnugrein á skynsamlegri nótum en áður. Það er ekki náttúrulögmál að ferðaþjónustan sé láglaunaatvinnugrein með ótryggum ráðningarsamböndum og ótrúlegum fjölda kjarasamningsbrota.

Alþýðusambandið hefur gefið út áherslur um uppbyggingu ferðaþjónustunnar á nýjum grunni þar sem þess er krafist að hagsmunir launafólks verði einn af hornsteinum starfsins. Að í ljósi mikilvægi greinarinnar fyrir íslenskt hagkerfi verði að mynda sátt um bætt kjör og aðbúnað starfsfólks enda verður arðsemi og sjálfbærni ekki náð öðruvísi. Lyfta verður grettistaki í að uppræta brotastarfsemi sem því miður hefur verið allt of tíð í ferðaþjónustunni. Þar ber hæst atvinnuöryggi og að þeir atvinnurekendur sem brjóta á fólki verði gerðir ábyrgir.
Nýtum tímann áður en ferðaþjónustan fer á fullt skrið og búum í haginn fyrir ábyrga, mannúðlega og skynsama atvinnugrein. Fyrsta skrefið í því er að leggja áherslu á starfsfólk í allri stefnumótun.

Hér má kynna sér áherslur ASÍ um uppbyggingu ferðaþjónustunnar.

Góða helgi,
Drífa

Tengdar fréttir

  • Opið fyrir umsóknir í Minningarsjóð Eðvarðs Sigurðssonar 2026

    Minningarsjóður Eðvarðs Sigurðssonar auglýsir eftir umsóknum. Sjóðurinn veitir styrki til…

    Ritstjórn

    25. mar 2026

    Eðvarð Sigurðsson
  • ASÍ 110 ára – samstaða verkafólks í rúma öld

    Í dag, 12. mars 2026, eru liðin 110 ár frá…

    Ritstjórn

    12. mar 2026

  • Alþýðusamband Íslands afhendir vörsluútgáfu til Þjóðskjalasafns Íslands

    Í vikunni undirrituðu Alþýðusamband Íslands (ASÍ) og Þjóðskjalasafn Íslands (ÞÍ)…

    Ritstjórn

    12. mar 2026

    Samningurinn undirritaður. Frá vinstri Njörður Sigurðsson aðstoðarþjóðskjalavörður, Eyrún B. Valsdóttir, framkvæmdastjóri ASÍ. og Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ.