Verð á Freyju páskaeggjum hækka um 17% milli ára í Bónus og Krónunni, mun meira en páskaegg Góu (13%) og Nóa Síríus (9%). Þau eru einnig dýrari en páskaegg Góu og Nóa í kílóverðssamanburði verðlagseftirlitsins.
Í lágvöruverðsverslunum hækkar meðalverð á páskaeggjum um 12-17% milli ára. Minnst hækkar verð í Krambúðinni og 10-11, en mest hækkar það í Extra og Kjörbúðinni, um 25-27% milli ára.
Könnunin var framkvæmd síðasta laugardag. Daginn eftir lækkaði Nettó verð á páskaeggjum um 3,6% og eru þau nú iðulega á sama verði og í Krónunni.
Páskaegg eru dýrust í Iceland, ódýrust í Prís
Prís bauð lægsta verðið á öllum 12 páskaeggjum sem þar voru til sölu, en það voru fjögur frá Freyju, þrjú frá Góu og sex frá Nóa Síríus. Iceland var að jafnaði með hæsta verð á páskaeggjum, en þau kostuðu að meðaltali helmingi meira í Iceland en þar sem þau voru ódýrust.
Bónus og Krónan voru skammt undan, að meðaltali hársbreidd frá lægsta verði, og voru með mest úrval, eða 45-48 íslensk páskaegg. Í Fjarðarkaupum fundust 39, að meðaltali rúmum 3% frá lægsta verði.
Gaman er að geta þess að Fríhöfnin selur þrjár týpur páskaeggja; Nóa páskaegg nr. 4, sem kostaði 13% meira í Fríhöfninni en í Prís, og tvo kassa með fjórum litlum páskaeggjum. Kassarnir fengust báðir ódýrari í Bónus, en þar munaði 5%.
Bestu kaupin í stóru eggjunum
Páskaeggin eru misstór, en þegar kílóverð eru borin saman sést að Freyju-páskaeggin eru dýrust, Nóa-eggin næstdýrust og Góu-egg ódýrust.
Bestu kaupin – ef planið er að torga kílógrammi af sætindum – er Risaeggið frá Bónus eða Góu páskaegg nr. 11. Í viðráðanlegri stærðum eru sérframleiddu verslanaeggin hagkvæmust. Bónus egg, Krónu egg og Okkar egg í Nettó kosta reyndar 17-20% meira á kílóið, en eru mun smærri.
Mjólkurlaust Nóa egg nr. 4 kostar um 7% meira en svipað stórt Nóa-egg með mjólkursúkkulaði og Freyju suðusúkkulaðiegg kostar 17% meira, í kílóverði talið, en Freyju fjöregg, sem er af svipaðri stærð.
Hægt er að skoða kílóverð páskaeggja á heimasíðu verðlagseftirlitsins, verðlagseftirlit.is.
Fimm útlagar í Kjörbúðinni
Mikil hækkun á páskaeggjaverði í Kjörbúðinni skýrist af fimm páskaeggjum sem hafa hækkað um meira en helming frá því í fyrra;
- Góu páskaegg og hraunegg nr. 1 hafa tvöfaldast í verði, úr rúmum 150kr í 295kr.
- Freyju fjöregg nr. 6 hefur hækkað úr 2.399kr í 4.199kr. Það var í fyrra svipað dýrt og í Bónus en er nú 52% dýrara.
- Nóa ljóst páskaegg nr. 1 hefur hækkað úr 241kr upp yfir 370kr.
Án þessara fimm páskaeggja hefur meðalhækkun á verði páskaeggja í Kjörbúðinni verið 21%.
Aðferðafræði:
Borin voru saman meðalverð marsmánaðar 2024 við verð á páskaeggjum á laugardaginn síðastliðinn þegar meðaltöl voru reiknuð. Þegar breytingar á verði stakra páskaeggja voru reiknaðar var miðað við 25. mars 2024 annars vegar og laugardaginn 5. apríl 2025 hins vegar.