Kristín Heba nýr framkvæmdastjóri Vörðu – rannsóknarstofnunar

Höfundur

Ritstjórn

Kristín Heba Gísladóttir hefur verið ráðin í starf framkvæmdastjóra Vörðu – rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins. Kristín Heba er með BA-gráðu í sálfræði frá Háskólanum á Akureyri og Meistarapróf í auðlindafræði frá sama skóla. Undanfarin ár hefur hún starfað sem framkvæmdastjóri AkureyrarAkademíunnar en þar sá hún um daglegan rekstur, samskipti við stjórnvöld og kjörna fulltrúa, stjórnun verkefna auk þess að vera talsmaður AkureyrarAkademíunnar út á við. Þá hefur Kristín Heba starfað sem stundakennari við Háskólann á Akureyri frá árinu 2012.

„Ég hlakka til að hefja störf, kynnast fólkinu í hreyfingunni og takast á við öll þau spennandi verkefni sem framundan eru hjá Vörðu með það að markmiði að bæta kjör og lífsgæði launafólks“ segir Kristín Heba um nýja starfið.

—–
Alþýðusamband Íslands og BRSB stofnaðu Vörðu – rannsóknarstofnun í vinnumarkaðarins í október 2019 til að efla rannsóknir á sviði vinnumarkaðar, félags- og efnahagsmála. Stofnuninni er ætlað að dýpka umræðuna um kaup og kjör og koma þannig með aukið fóður inn í baráttu launafólks fyrir bættri afkomu og betri lífsskilyrðum.

Tengdar fréttir

  • Vel heppnað þing ASÍ-UNG

    ASÍ-UNG hélt sitt 11. þing föstudaginn 17. október og var…

    Ritstjórn

    20. okt 2025

  • Skýrsla forseta ASÍ 2025 komin út

    Skýrsla forseta fyrir árið 2025 er að venju efnismikil og…

    Arnaldur Grétarsson

    17. okt 2025

  • ASÍ gagnrýnir niðurskurð og óttast aukna verðbólgu

    Alþýðusamband Íslands gerir athugasemdir við áform ríkisstjórnarinnar um niðurskurð eins…

    Ritstjórn

    17. okt 2025