Kristján Þórður Snæbjarnarson fer ekki fram

Höfundur

Ritstjórn

Kristján Þórður Snæbjarnarson hefur tilkynnt um að hann gefi ekki kost á sér til embættis forseta ASÍ á komandi þingi 10.-12. október n.k.

Kristján segir það hafa verið gefandi verkefni að stuðla að auknu samtali á milli ólíkra hópa innan ASÍ frá því að hann tók óvænt við hlutverki forseta 10. ágúst s.l. Það hafi verið flókið fyrir hann að komast að niðurstöðu um næstu skref, þar sem verkefnin framundan eru spennandi bæði hjá RSÍ og ASÍ. Framundan séu þó gríðarlega stór og gefandi verkefni hjá RSÍ, sem hann hyggst taka þátt í, þrátt fyrir hvatningu um að gefa kost á sér til forseta úr mörgum áttum.

Ég hef því ákveðið að gefa ekki kost á mér í embætti forseta ASÍ að svo stöddu heldur einbeita mér að verkefnum RSÍ. Ég mun þó áfram gefa kost á mér til þátttöku í forystu ASÍ sem 1. varaforseti enda mikil þörf á að tryggja að rödd iðn- og tæknifólks heyrist innan heildarsamtakanna,“ segir Kristján Þórður í tilkynningu sem hann birtir á facebook síðu sinni í dag, 5. september.

Tengdar fréttir

  • Eftirlitsfulltrúar í námsferð til Helsinki

    Starfsdagar eftirlitsfulltrúa Alþýðusambands Íslands og stéttarfélaganna fóru fram í Helsinki…

    Kristjana Fenger

    7. nóv 2025

  • Vel heppnað þing ASÍ-UNG

    ASÍ-UNG hélt sitt 11. þing föstudaginn 17. október og var…

    Ritstjórn

    20. okt 2025

  • Skýrsla forseta ASÍ 2025 komin út

    Skýrsla forseta fyrir árið 2025 er að venju efnismikil og…

    Ritstjórn

    17. okt 2025