Lægri tekjur og minna atvinnuöryggi hjá hinsegin fólki

Höfundur

Ritstjórn

Atvinnutekjur hinsegin karla eru 30% lægri en gagnkynhneigðra karla á ársgrundvelli en hverfandi munur mælist hjá hinsegin konum. Aðeins um helmingur hinsegin fólks á vinnumarkaði er að fullu opið með hinseginleika sinn á vinnustöðum og tæplega 60% segir að almennt halli á kjör þeirra og réttindi á vinnumarkaði.

Sterkt ákall er um aukna umfjöllun um málefni hinsegin fólks á vinnumarkaði. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu Hagfræðistofnunar um hinsegin vinnumarkað sem unnin var fyrir ASÍ, BHM og BSRB og könnun BHM um hinsegin vinnumarkað. Helstu niðurstöður hafa verið teknar saman í stutt yfirlit sem má sjá hér.

Nálgast má gögnin hér:

Tengdar fréttir

  • Eftirlitsfulltrúar í námsferð til Helsinki

    Starfsdagar eftirlitsfulltrúa Alþýðusambands Íslands og stéttarfélaganna fóru fram í Helsinki…

    Kristjana Fenger

    7. nóv 2025

  • Vel heppnað þing ASÍ-UNG

    ASÍ-UNG hélt sitt 11. þing föstudaginn 17. október og var…

    Ritstjórn

    20. okt 2025

  • Skýrsla forseta ASÍ 2025 komin út

    Skýrsla forseta fyrir árið 2025 er að venju efnismikil og…

    Arnaldur Grétarsson

    17. okt 2025