Á heildina hefur þróun á erlendum mörkuðum verið íslenskum olíumarkaði hagfelld. Heimsmarkaðsverð olíu hefur leitað niður á við á árinu. Snörp hækkun, sem rekja mátti til átaka í Vestur-Asíu hefur að mestu gengið til baka eftir undirritun samkomulags um vopnahlé. Gengi íslensku krónunnar gagnvart Bandaríkjadollar hefur einnig styrkst. Alls hefur olíutunnan lækkað um 10% frá áramótum, mælt í krónum.
Lækkun innkaupaverðs ekki ratað í smásöluverð
Samkvæmt útreikningum ASÍ hefur fyrrnefnd lækkun heimsmarkaðsverðs ekki komið fram í íslensku eldsneytisverði. Raunar hefur dagsmeðaltal verðs á 95 oktana bensín einungis lækkað um rúm 2% frá upphafi árs. Á sama tíma hefur mældur meðal brúttóhagnaður af seldum bensínlítra hækkað um tæp þrjú prósentustig frá 2024 og það sem af er 2025 (úr 22,72% í 25,58%).
Lægsta lítraverðið er sem fyrr hjá Costco í Garðabæ, en meðalverðið er að jafnaði næstlægst hjá Atlantsolíu. Önnur olíufélög raða sér þar á eftir. Meðalverðið er samfellt hæst hjá Olís.
Sérstakir afsláttardagar stóðu yfir um miðjan apríl hjá Atlantsolíu, en þá munaði einunigs rúmum 17 krónum á útsöluverði þeirra og Costco.
Dagsmeðaltöl bensínverðs segir þó bara hálfa söguna. Breytileiki á verðum getur verið mjög mikill milli ólíkra smásala en einnig innan hjá sömu smásölum.
Tafla 1. Mesti verðmunur innan dags, eftir olíufélögum
Olíufélag | Mesti verðmunur innan dags (kr.) | Lægsta verð | Hæsta verð |
Atlantsolía | 28,9 | Borgarnesi | Kópavogsbraut |
N1 | 33,4 | Tryggvabraut – Akureyri | Tálknafjörður |
Olís | 13,9 | Akureyri | Hrauneyjar |
Orkan | 29,9 | Hörgárbraut | Miðvangi – Egilsstaðir |
ÓB | 30,9 | Hamraborg | Snorrabraut |
Auðveldlega hægt að spara stórar fjárhæðir
Þegar litið er til verðmunar innan dags, eftir staðsetningu, var munurinn á höfuðborgarsvæðinu mest 32,7 krónur í byrjun mars. Í því tilfelli hefði neytandi, með 40 lítra tank, getað sparað sér rúmar 1.300 krónur með því að keyra frá Olís Ánanustum yfir á Atlantsolíu við Skúlagötu. Í samanburði í höfuðborginni er Costco undanskilið, en sú stöð er markvisst ódýrari en aðrar.
Verðmunur utan höfuðborgarinnar mældist mestur í póstnúmerum 800 (Selfoss), 531 (Hvammstangi), 600 (Akureyri) og 700 (Egilsstaðir); á bilinu 32,7 til 37,7 krónur. Þær athuganir eru dreifðar yfir árið. Á Selfossi (Atlantsolía og Olís) og Egilsstöðum (Orkan og N1) eru fjarlægðir milli stöðvanna með lægsta og hæsta verð innan við hálfur kílómetri.
Verðlækkanir framundan?
Fyrirhugað kílómetragjald stjórnvalda, þar sem opinberar álagningar leggjast að mestu af mun einnig leiða til lægra útsöluverðs á eldsneyti. Með hliðsjón af viðmiðunarverði ASÍ fyrir júní ætti lítrinn af 95 oktana bensíni að lækka um rúmar 100 krónur. Það eru rúmar 4.200 krónur ef fyllt er á Toyota Yaris (42 lítrar). Sá útreikningur byggir á því að verð til olíufélaga haldist óbreyttur. Með hliðsjón af þróun heimsmarkaðsverðs er raunar innistæða fyrir því að sá hluti bensínverðsins lækki enn frekar.
Heimildir
- Innlend verð: Daglegar athuganir frá Gasvaktinni niður á einstakar bensínstöðvar. Sjá Gasvaktin. (e.d.). Gögn um eldsneytisverð á Íslandi [Gagnasafn]. Sótt 27. júní 2025 af https://github.com/gasvaktin/gasvaktin.
- Heimsmarkaðsverð: Verð á bensíni til afhendingar í New York höfn. Sjá U.S. Energy Information Administration. (e.d.). Weekly U.S. Product Supplied of Finished Motor Gasoline (psw11) [Gagnasafn]. Orkustofnun Bandaríkjanna. Sótt 27. júní 2025 af https://ir.eia.gov/wpsr/psw11.xls
- Gengisupplýsingar Seðlabanki Íslands. (e.d.). Gengi: Bandaríkjadalur (daglegt miðgengi) [Gagnasafn]. Sótt 27. júní 2025 af https://www.cb.is/statistics/official-exchange-rate/https://www.cb.is/statistics/official-exchange-rate/
- Opinber álagning: Skatturinn https://www.skatturinn.is/atvinnurekstur/skattar-og-gjold/oliugjald/