Lækkun olíuverðs ekki skilað sér í smásöluverð 

Höfundur

Ritstjórn

Verð á olíu hefur farið lækkandi á heimsmörkuðum undanfarna daga í kjölfar friðarviðræðna milli Bandaríkjanna og Íran. Alls hefur verðið lækkað um 37% frá því það var sem hæst í apríl og verðið nú svipað og áður en átökin hófust. Lækkun á olíuverði hefur einnig komið fram í lækkun á innflutningsverði á bensíni. Þar hefur verðið  lækkað um 21% frá því það var hæst um miðjan maí.  

Á sama tíma hefur smásöluverð á bensíni lækkað um tæplega 3%. Hlutur olíufélaga af hverjum seldum lítra hefur því farið vaxandi og er nú svipaður og í upphafi árs, eða um 60 krónur af lægsta verði. Alþýðusambandið hefur áður bent á hækkandi hlut olíufélaga síðustu ár sem jafnframt er sögulega hár um þessar mundir. ASÍ hefur einnig bent á að verðlækkanir á heimsmarkaðsverði og gengisstyrkingar miðlist treglega í smásöluverð á bensíni (Gengisáhrifa gætir ekki á íslenskum bensíndælum  og Ný grein í Vísbendingu: Kílómetragjald og samkeppni á eldsneytismarkaði). 

Mest lækkun á stöð Costco 

Lægsta verð á bensínlítranum er að finna á stöð Costco í Kauptúni og hefur það lækkað um 10 krónur á lítrann frá því það var hæst, eða um 3,5%. Áður hafði ASÍ bent á að lækkun virðisaukaskattlækkunar hafi skilað sér hjá öllum smásölum nema Costco (Lækkun virðisaukaskatts skilað sér að fullu hjá öllum nema Costco). Hjá öðrum smásölum hefur lækkunin verið á bilinu 5-6 krónur á lítrann á lægsta lítraverð eða um 2,5%.  

Hlutur olíufélaga í bensínlítranum hækkað að nýju 

Lækkun á innflutningsverði eldsneytis án samsvarandi lækkunar á smásöluverði hefur leitt til þess að hlutur olíufélaga í hverjum seldum lítra hefur farið vaxandi að nýju. Í upphafi árs áætlaði ASÍ að hlutur olíufélaga í seldum bensínlítra væri um 60 krónur af lægsta lítraverði en með hlut olíufélaga er átt við þann hlut sem stendur undir öllum öðrum kostnaði við sölu auk arðsemi. (Nýtt kílómetragjald – dýrara að keyra sparneytnar bifreiðar)  Töluvert getur munað á lægsta og hæsta lítraverði hjá sama olíufélagi og því getur hlutur af hærra lítraverði verið umtalsvert meiri.  

Eftir að átök brutust út í Íran mældust skarpar verðhækkanir á olíuverði. Samhliða lækkaði hlutur olíufélaga auk þess sem lækkun virðisaukaskatts á bensín leiddi til þess að áhrifin verðhækkana komu ekki fram af fullum þunga í smásöluverði. Undanfarnar vikur hafa verðlækkanir á bensíni ekki skilað sér í samsvarandi lækkun á smásöluverði og hefur áætlaður hlutur farið hækkandi og er nú ríflega 60 krónur, svipað og í upphafi árs.     

Tengdar fréttir

  • Verð á súkkulaði hækkað um tæpan þriðjung á tveimur árum

    Verð á vinsælum súkkulaði- og sælgætisvörum hefur hækkað um tæp…

    Ritstjórn

    26. jún 2026

  • Sumargrillið hækkar í verði

    Verð á matvöru hækkaði um 0,3% milli mánaða samkvæmt dagvöruvísitölu…

    Ritstjórn

    19. jún 2026

  • Verðmunur á einstökum matvörum meiri en tvöfaldur

    Nýr samanburður Verðlagseftirlits ASÍ á matvöruverði sýnir að verðmunur á…

    Ritstjórn

    18. jún 2026