Mætum öll á mótmæli á Austurvelli 10. september, kl.16:00!

Höfundur

Arnaldur Grétarsson

Nú er nóg komið og tímabært að stjórnvöld axli ábyrgð á því síversnandi efnahagsástandi sem birtist landsmönnum. Þrálát verðbólga og háir vextir hafa haft alvarlegar afleiðingar á fjölda heimila og ástandið bitnar verst á þeim sem minnst hafa á milli handanna.

Á sama tíma hafa stjórnvöld brugðist hlutverki sínu með sinnuleysi í þessu helsta viðfangsefni sínu undanfarin ár.

Við sættum okkur ekki við aðgerðaleysið – stjórnvöld verða að sýna samstöðu með heimilum í landinu í verki! Strax!

Alþýðusamband Íslands (ASÍ), BSRB og Kennarasamband Íslands (KÍ) boða til mótmæla á Austurvelli þann 10. september næstkomandi, kl. 16:00.

Nú er nóg komið!

Tengdar fréttir

  • Stýrivaxtahækkun Seðlabanka Íslands er áfellisdómur yfir efnahagsstjórn landsins

    Miðstjórn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) samþykkti eftirfarandi ályktun á fundi sínum…

    Ritstjórn

    18. mar 2026

  • Aukin mis­skipting leysir ekki verðbólgu­vandann

    Finnbjörn Hermannsson og Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifa: Aðilar vinnumarkaðarins gerðu…

    Ritstjórn

    3. mar 2026

  • STUNDIN ER RUNNIN UPP: Kvennaverkfall, söguleg ganga og kvennakraftur um

    Konur og kvár um allt land undirbúa sig nú fyrir…

    Ritstjórn

    23. okt 2025