Ný skýrsla frá Kjaratölfræðinefnd kynnt á fimmtudag

Höfundur

Ritstjórn

Fimmtudaginn 28. október 2021, kl. 10.00 -10:40, verður kynnt haustskýrsla Kjaratölfræðinefndar, samstarfsvettvangs um gerð og hagnýtingu tölfræðigagna um laun og efnahag. Í skýrslunni er fjallað um kjarasamningalotuna sem hófst á vormánuðum 2019 og er senn að ljúka, þróun efnahagsmála og launa.

Kynningin verður í formi fjarfundar sem streymt verður í gegnum heimasíðu Kjaratölfræðinefndar. Edda Rós Karlsdóttir, formaður nefndarinnar, kynnir skýrsluna og gerir grein fyrir helstu atriðum hennar og niðurstöðum.

Meðal nýjunga í skýrslunni eru:
• Launaþróun ASÍ félaga á almennum markaði er birt sundurliðuð eftir Starfsgreinasambandinu, félögum verslunarmanna, og iðnfélögum.
• Breytingar á grunntímakaupi allra hópa er birt skipt eftir áhrifum vinnutímatímabreytinga og annarra launabreytinga.
• Samsetning starfa er birt á eftir starfshlutfalli og vinnufyrirkomulagi (þ.e. vaktavinnu).
• Fjallað er um laun fólks í hlutastörfum sem hlutfall af launum fólks í fullu starfi.
• Allir launaþættir eru nú sundurliðaðir eftir konum og körlum.
• Launastig og launaþróun á Íslandi er sett í alþjóðlegt samhengi.

Tekið verður við fyrirspurnum á ktn@ktn.is meðan á fundinum stendur. Fundarstjórn verður í höndum Aðalsteins Leifssonar ríkissáttasemjara.

Í nefndinni sitja fulltrúar heildarsamtaka á vinnumarkaði, ríkis og sveitarfélaga, auk fulltrúa forsætisráðuneytis, félagsmálaráðuneytis og Hagstofu Íslands. Haustskýrslan er þriðja skýrsla nefndarinnar, og stefnt er að því að skýrslunar verði tvær ár hvert – vor og haust.

Skýrslan og tölfræðigögn verða aðgengileg á vef Kjaratölfræðinefndar www.ktn.is frá 28. október nk. Það er von nefndarinnar að sá grunnur upplýsinga og tölfræðigagna sem settur er fram í skýrslunni nýtist haghöfum vel við mat á kjaraþróun og við undirbúning komandi kjarasamninga.

Tengdar fréttir

  • Opið fyrir umsóknir í Minningarsjóð Eðvarðs Sigurðssonar 2026

    Minningarsjóður Eðvarðs Sigurðssonar auglýsir eftir umsóknum. Sjóðurinn veitir styrki til…

    Ritstjórn

    25. mar 2026

    Eðvarð Sigurðsson
  • ASÍ 110 ára – samstaða verkafólks í rúma öld

    Í dag, 12. mars 2026, eru liðin 110 ár frá…

    Ritstjórn

    12. mar 2026

  • Alþýðusamband Íslands afhendir vörsluútgáfu til Þjóðskjalasafns Íslands

    Í vikunni undirrituðu Alþýðusamband Íslands (ASÍ) og Þjóðskjalasafn Íslands (ÞÍ)…

    Ritstjórn

    12. mar 2026

    Samningurinn undirritaður. Frá vinstri Njörður Sigurðsson aðstoðarþjóðskjalavörður, Eyrún B. Valsdóttir, framkvæmdastjóri ASÍ. og Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ.