Pistill forseta ASÍ – Atvinnuleysi, óörugg afkoma og heilsa

Höfundur

Drífa Snædal

Varða rannsóknastofnun vinnumarkaðarins kynnti í vikunni niðurstöður viðamikillar rannsóknar á stöðu launafólks og atvinnuleitenda. Spurningar voru lagðar fyrir félagsfólk ASÍ og BSRB og niðurstöðurnar staðfesta enn á ný að ungt fólk og fólk af erlendum uppruna fer sérstaklega illa út úr efnahagskreppunni. Fólk sem hefur verið með lágar tekjur og í ótryggu ráðningasambandi er sérstaklega viðkvæmt fyrir og yfirgnæfandi hluti þessara hópa eru á leigumarkaði. Þetta staðfestir líka mikilvægi þeirra aðgerða sem ASÍ hefur kallað eftir; að hækka atvinnuleysisbætur og að styðja við fólk með því að þétta öryggisnetið, ekki síst í gegnum húsnæðisbótakerfið og barnabótakerfið.

Rannsóknin varpar einnig ljósi á þær alvarlegu afleiðingar sem atvinnuleysi getur haft á heilsufar fólks. Reyndar er það svo að heilsufar bæði fólks á vinnumarkaði og utan þess er mikið áhyggjuefni. Fjórir af hverjum 10 atvinnuleitendum mælast með slæma andlega heilsu og sama má segja um ríflega fimmtung launafólks. Að auki hafði rúmur helmingur atvinnulausra neitað sér um heilbrigðisþjónustu. Um fjórðungur kvenna á vinnumarkaði býr við slæma andlega heilsu og þær neita sér frekar um heilbrigðisþjónustu en vinnandi karlar. Þetta eru sláandi tölur og óhætt að fullyrða að áhyggjur af afkomu hefur bein áhrif á líðan. Það er því heilsufarslegt mál að hækka laun, hækka bætur og stytta vinnudaginn. Einnig er brýnt að auðvelda aðgengi fólks að heilbrigðisþjónustu, hvort sem er vegna andlegra eða líkamlegra veikinda.

Sá tollur sem bág kjör og kostnaður við heilbrigðisþjónustu taka af fólki er ekki aðeins alvarlegur fyrir einstaklinga og fjölskyldur (ekki síst börn), heldur getur hér skapast framtíðarvandi sem mun koma í ljós með aukinni örorku og vanvirkni. Í þessu sambandi skiptir andleg heilsa ekki síður máli en líkamleg og það er löngu kominn tími til að ræða fyrir alvöru tengslin milli heilsufars og afkomu. Rannsókn Vörðu er mikilvægt framlag til þekkingarsköpunar um kjör og stöðu launafólks á Íslandi í miðri efnahagskreppu. Verkefnið núna er að mæta þessum veruleika af fullum þunga.

Góða helgi,
Drífa

Tengdar fréttir

  • Ný skýrsla Vörðu um réttlát umskipti í samgöngum

    Réttlát umskipti er hugtak notað til að lýsa hvernig umbreytingar…

    Ritstjórn

    13. apr 2026

  • Opið fyrir umsóknir í Minningarsjóð Eðvarðs Sigurðssonar 2026

    Minningarsjóður Eðvarðs Sigurðssonar auglýsir eftir umsóknum. Sjóðurinn veitir styrki til…

    Ritstjórn

    25. mar 2026

    Eðvarð Sigurðsson
  • ASÍ 110 ára – samstaða verkafólks í rúma öld

    Í dag, 12. mars 2026, eru liðin 110 ár frá…

    Ritstjórn

    12. mar 2026