Pistill forseta ASÍ – Breytingarnar verða að koma frá okkur

Höfundur

Ritstjórn

Kosningabaráttan er nú í algleymi og Alþýðusambandið lætur ekki sitt eftir liggja í þeirri samfélagsumræðu sem fylgir. Markmið okkar er að kjósendur séu eins vel upplýstir um eigin hagsmuni og mögulegt er og frambjóðendur þurfi að standa skil á þeim málefnum sem brenna helst á launafólki. Í vor lögðum við línurnar um stóru málin; afkomuöryggi, húsnæðismál, heilbrigðismál, menntamál og jöfnuð og það er ánægjulegt að sjá okkar málflutning vera ofarlega á baugi í lýðræðisumræðunni. Í kjölfarið höfum við átt opið samtal við formenn eða fulltrúa allra flokka sem mælast inni á þingi, nú um mundir má hlusta á hlaðvarpsþætti um hvern málaflokk í hlaðvarpi ASÍ og á fimmtudag í næstu viku þann 9. september kl. 11 eru allir formennirnir boðaðir í pallborðsumræðu sem verður í opinni dagskrá á netinu. Við hvetjum launafólk og almenning allan til að fylgjast vel með og ekki síst nýta atkvæðisréttinn sinn í komandi kosningum.

Kynferðislegt ofbeldi og áreitni er staðreynd og litar stöðu kynjanna í okkar samfélagi. Á miðstjórnarfundi ASÍ síðastliðinn miðvikudag kynnti Varða – rannsóknarstofnun vinnumarkaðarins nýja könnun um mál sem koma inn á borð stéttarfélaga og varða kynferðislega og kynbundna áreitni og ofbeldi og einelti. Ljóst er að aðildarfélög ASÍ og trúnaðarmenn á vinnustöðum þurfa aukinn stuðning og fræðslu til að aðstoða þolendur og jafnvel gerendur þegar upp koma mál á vinnustöðum eða í tengslum við þá. ASÍ mun á næstunni auka fræðslu og þekkingu og nesta aðildarfélögin enn frekar en nú er gert. Verkalýðshreyfingin þarf og ætlar sér að vera hluti af þeirri menningarbreytingu sem nauðsynleg er, bæði til að sinna sínu hlutverki gagnvart félagsmönnum og axla ábyrgð á öryggi fólks í víðtæku félagsstarfi innan hreyfingarinnar.

Góða helgi,
Drífa

Tengdar fréttir

  • Vel heppnað þing ASÍ-UNG

    ASÍ-UNG hélt sitt 11. þing föstudaginn 17. október og var…

    Ritstjórn

    20. okt 2025

  • Skýrsla forseta ASÍ 2025 komin út

    Skýrsla forseta fyrir árið 2025 er að venju efnismikil og…

    Arnaldur Grétarsson

    17. okt 2025

  • ASÍ gagnrýnir niðurskurð og óttast aukna verðbólgu

    Alþýðusamband Íslands gerir athugasemdir við áform ríkisstjórnarinnar um niðurskurð eins…

    Ritstjórn

    17. okt 2025