Pistill forseta – Heilbrigði og húsnæði um allt land

Höfundur

Drífa Snædal

Á síðustu vikum hef ég, ásamt fleirum í forystu ASÍ, haldið ótal fundi með stjórnum aðildarfélaga ASÍ um allt land. Atvinnumál á hverjum stað og lífsgæði fólks almennt hafa verið stóru málin og mjög víða ríkir bjartsýni og uppgangur. Þó er áberandi hversu misjafnlega niðursveiflan kom niður á svæðum og enn eru sum svæði sem glíma við alvarlegar afleiðingar.

Samtalið við fjölda fulltrúa, stjórnarmanna og trúnaðarmanna færðu mér heim sanninn um að þær áherslur sem ASÍ lagði upp með í vor í aðdraganda þingkosninganna væru réttar: Húsnæðismálin eru ekki bara einn stærsti áhrifavaldur varðandi öryggi og afkomu fólks, heldur stendur húsnæðisskortur atvinnulífinu fyrir þrifum víða um land. Þar sem tilfinnanlegur skortur er á húsnæði fæst ekki fólk til starfa. Húsnæðismálin eru og verða eitt stærsta viðfangsefnið og það er skýlaus krafa að nálgast þau með félagslegum hætti þannig að öllum sé tryggt gott húsnæði á viðráðanlegum kjörum.

Heilbrigðismálin voru líka ofarlega á baugi víða um land. Ekki bara öldrunarþjónustan og aðgengi að heilsugæslu, heldur einnig fæðingarþjónusta og langtíma meðferðir. Það er himinn og haf á milli þjónustu við dreifbýlið annars vegar og þéttbýlið hins vegar. Utan þéttbýlla svæða þarf fólk að nýta veikindadaga, orlof og á köflum launalaust leyfi til að dvelja langdvölum í Reykjavík eða á Akureyri til meðferðar og ef von er á barni. Þetta er bein kjaraskerðing við fólk eftir búsetu og bætist við þá fjölmörgu þætti sem þarf að endurskoða varðandi heilbrigðiskerfið okkar til að það þjóni öllum óháð efnahag eða búsetu. Fjölmörg önnur mál voru til umræðu en það er ljóst að áhrif tæknibreytinga á einstaka byggðir hafa verið og verða verulegar. Það beinir sjónum að því hvernig hægt er að tryggja að framleiðniaukningin og fækkun starfsfólks sem verður með tæknibreytingum skili sér raunverulega inn í samfélög og í auknum lífsgæðum, í gegnum hærri laun eða styttri vinnutíma. Þar ber að nýta hugmyndafræði réttlátra umskipta.

Takk kærlega fyrir frábærar móttökur kæru félagar!

Góða helgi,
Drífa

Tengdar fréttir

  • Ný skýrsla Vörðu um réttlát umskipti í samgöngum

    Réttlát umskipti er hugtak notað til að lýsa hvernig umbreytingar…

    Ritstjórn

    13. apr 2026

  • Opið fyrir umsóknir í Minningarsjóð Eðvarðs Sigurðssonar 2026

    Minningarsjóður Eðvarðs Sigurðssonar auglýsir eftir umsóknum. Sjóðurinn veitir styrki til…

    Ritstjórn

    25. mar 2026

    Eðvarð Sigurðsson
  • ASÍ 110 ára – samstaða verkafólks í rúma öld

    Í dag, 12. mars 2026, eru liðin 110 ár frá…

    Ritstjórn

    12. mar 2026