Pistill forseta – Hreyfing með byr í seglum

Höfundur

Drífa Snædal

Verkalýðshreyfing sem nýtur ekki trausts sinna félagsmanna er lítils megnug enda fer aflið og slagkrafturinn eftir virkni og vilja félaganna. Það er því sérstaklega ánægjulegt að fá hverja könnunina á eftir annarri sem sýnir vaxandi stuðning við störf hreyfingarinnar. Nú síðast birtu Eining-Iðja á Akureyri og AFL starfsgreinafélag á Austurlandi niðurstöður skoðanakannana þar sem allt ber að sama brunni. Félagsmenn styðja sitt stéttarfélag, eru sáttir við störfin og telja félagið sitt standa með sér. Fyrr á þessu ári fengum við niðurstöður um traust gagnvart ASÍ, en það fer vaxandi svo um munar. Hreyfing vinnandi fólks hefur verið fyrirferðarmikil á árinu sem er að líða og haft áhrif í stóru sem smáu, ekki aðeins varðandi kaup og kjör heldur í stórum samfélagsmálum. Þar má nefna húsnæðismál, skattamál og vaxtamál svo eitthvað sé nefnt.

Við höfum átt starfssamt ár en næsta ár verður ekki síður fullt af verkefnum og áskorunum. Enn á eftir að vinna úr fjölmörgum atriðum er lúta að kjarasamningunum og yfirlýsingum stjórnvalda frá því í vor. Svo ber að nefna að opinberir starfsmenn eiga enn eftir að semja við ríki og sveitarfélög. Þeir starfsmenn hafa nú verið samningslausir í níu mánuði sem er nánast fordæmalaust. Auk þessara mála mun Alþýðusambandið leggja áherslu á fræðslumál, breytingar á vinnumarkaði í framtíðinni og umhverfismál á nýju ári. Sem sagt, allt samfélagið undir eins og fyrri daginn.

Þegar svona risavaxin verkefni eru á borðinu er gott að finna stuðning félagsmanna og ég hvet vinnandi fólk hvar sem er til að taka þátt í starfsemi síns stéttarfélags, láta í sér heyra og leggja sitt á vogaskálarnar fyrir betra samfélagi. Verkalýðshreyfingin byggir ekki á einstaklingum heldur samstöðu margra. Aðeins þannig hefur árangur náðst.

Ég óska launafólki og landsmönnum öllum gleðilegra jóla, þakka fyrir gott og gjöfult ár og brýni okkur til góðra verka á nýju ári.

Drífa

Tengdar fréttir

  • Eftirlitsfulltrúar í námsferð til Helsinki

    Starfsdagar eftirlitsfulltrúa Alþýðusambands Íslands og stéttarfélaganna fóru fram í Helsinki…

    Kristjana Fenger

    7. nóv 2025

  • Vel heppnað þing ASÍ-UNG

    ASÍ-UNG hélt sitt 11. þing föstudaginn 17. október og var…

    Ritstjórn

    20. okt 2025

  • Skýrsla forseta ASÍ 2025 komin út

    Skýrsla forseta fyrir árið 2025 er að venju efnismikil og…

    Arnaldur Grétarsson

    17. okt 2025