Undanfarin misseri hafa komið upp á yfirborðið nokkur mál á íslenskum vinnumarkaði sem sýna að vinnumansal þrífst í íslensku samfélagi.
Hver er ábyrgð samfélagsins og hvernig getum við komið í veg fyrir vinnumansal? Hvernig gengur okkur að vernda þolendur vinnumansals?
Ráðstefnan verður í Hörpu þann 26. september nk. Húsið opnar kl. 9.30 og dagskrá lýkur kl. 16.
Ekkert kostar inn á ráðstefnuna en mikilvægt er að skrá sig til leiks hér:
Dagskráin er fjölbreytt og samanstendur af erindum, pallborðsumræðum og málstofum.
Fulltrúar úr verkalýðshreyfingunni, atvinnulífinu, fræðasamfélaginu og frá opinberum stofnunum taka þátt með kynningum og umræðum.
Boðið verður upp á túlkun milli ensku og íslensku. Hægt er að óska eftir táknmálstúlkun við skráningu.
Við hvetjum öll þau sem hafa snertingu við málaflokkinn og önnur áhugasöm um að skrá sig.
Dagskrá
9.30-10.00 Skráning og kaffi bíður á borðum
10.00-10.30 Opnun og umræður
- Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ
- Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri SA
- Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra
10.30-11.15 Addressing Labour Exploitation in the Nordic Countries: What Are the Differences and Why is Finland Ahead of the Rest?
Natalia Ollus, forstöðukona HEUNI, evrópskrar rannsóknarstofnunar sem starfar undir finnska dómsmálráðuneytinu
11.15-11.45 Hvernig komum við í veg fyrir vinnumansal? Pallborð
- Natalia Ollus, forstöðukona HEUNI
- Maj-Britt Hjördís Briem, lögmaður á vinnumarkaðssviði SA
- Saga Kjartansdóttir, sérfræðingur á skrifstofu ASÍ
- Heimir Guðmundsson, sviðsstjóri vinnuverndar, Vinnueftirliti ríkisins
11.45-12.15 Siðferðisleg ábyrgð samfélagsins í stóru samhengi
Henry Alexander Henrysson, heimspekingur
12.15-13.15 Hádegisverður
13.15-14.15 Málstofur I
Er vinnumansal fylgisfiskur fólksflutninga? Innflytjendur og inngilding
Málstofustjóri: Guðrún Margrét Guðmundsdóttir
- Aleksandra Leonardsdóttir, sérfræðingur í fræðslu og inngildingu, ASÍ
- Hallfríður Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri Mirru, fræðslu- og rannsóknarseturs
- Sandra Björk Bjarkadóttir, mannauðs- og jafnréttissérfræðingur, Samkaup
- Sabine Leskopf, borgarfulltrúi, Reykjavíkurborg
Ábyrgð fyrirtækja í virðiskeðjunni
Málstofustjóri: Heiðrún Björk Gísladóttir
- Andri Reyr Haraldsson, formaður Félags íslenskra rafvirkja
- Gunnar S. Magnússon, yfirmaður sjálfbærni og loftlagsmála hjá Deloitte á Íslandi
- Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs, Samtökum iðnaðarins
Eftirlit á vinnumarkaði – framkvæmd og reynsla í nútíð og framtíð
Málstofustjóri: Benóný Harðarson
- Adam Kári Helgason, eftirlitsfulltrúi hjá Húsi fagfélaganna
- Axel Ólafur Pétursson, sérfræðingur á sviði vinnuverndar, Vinnueftirliti ríkisins
- Ragnar Árnason, forstöðumaður vinnumarkaðssviðs SA
- Tania D. Ellifson, verkefnisstjóri atvinnuréttinda hjá Vinnumálastofnun
14.15-14.30 Kaffihlé
14:30-15:30 Málstofur II
Vernd og þjónusta við þolendur vinnumansals
Málstofustjóri: Björg Bjarnadóttir
- Guðlaug Jóna Hilmarsdóttir, verkefnastjóri á velferðarsviði Reykjavíkurborgar
- Gundega Jaunlinina, varaformaður Verkalýðsfélagsins Hlífar
- Jenný Kristín Valberg, teymisstjóri Bjarkarhlíðar
- Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar
Rannsókn og saksókn vinnumansalsmála
Málstofustjóri: Mirabela Blaga
- Alda Hrönn Jóhannsdóttir, yfirlögfræðingur hjá lögreglustjóranum á Suðurnesjum
- Hildur Sunna Pálmadóttir, aðstoðarsaksóknari hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu
- Natalia Ollus, forstöðukona HEUNI
- Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdarstjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands
- Svala Ísfeld Ólafsdóttir, dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík
Hver má vinna á Íslandi? Kostir og gallar við núverandi löggjöf um atvinnuleyfi
Málstofustjóri: María Guðjónsdóttir
- Bryndís Axelsdóttir, lögfræðingur og deildarstjóri atvinnuréttinda erlendra starfsmanna
- Halldór Oddsson, sviðsstjóri lögfræði- og vinnumarkaðssviðs ASÍ
- Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdarstjóri Samtaka ferðaþjónustunnar
- Lilja Björk Guðmunsdóttir, yfirlögfræðingur Samtaka iðnaðarins
15.30 Ráðstefnulok