SGS krefst þess að hætt verði við uppsagnir á hjúkrunarheimilum

Höfundur

Ritstjórn

Starfsgreinasamband Íslands mótmælir harðlega boðuðum uppsögnum á hjúkrunarheimilum í Fjarðabyggð og Vestmannaeyjabæ. Það er aumur fyrirsláttur hjá ríkinu að það sé nauðsynlegt vegna yfirfærslu rekstarins frá sveitarfélögum til ríkisins og hrein svik á því sem stéttarfélögum starfsmanna hefur verið gefið til kynna.

Það eru algerlega forkastanleg vinnubrögð hjá Heilbrigðisráðuneytinu að krefjast þess að allt að 150 starfsmönnum verði sagt upp, sem eru að langmestu leyti konur í láglaunastörfum, að því virðist með það að markmiði að ráða þær aftur til starfa undir öðrum kjarasamningi og á lægri kjörum.

Á landinu er atvinnuleysi í sögulegu hámarki og koma þessar fyrirhuguðu uppsagnir í framhaldi af öðrum uppsögnum á heilbrigðisstofnunum á svæðinu sem er grímulaus aðför að láglauna kvennastéttum.

Þessa ruddalega framkoma eru ótrúlegar kveðjur til þessa fólks sem hefur unnið sín mikilvægu störf undir miklu álagi undanfarin misseri.

SGS krefst þess að hætt verði uppsagnirnar og málið leyst þannig starfsfólkið haldi vinnu sinni og kjörum.

Tengdar fréttir

  • 4,9% atvinnuleysi í janúar

    Skráð atvinnuleysi árið 2025 var 3,9% á ársgrundvelli, samkvæmt nýjustu…

    Ritstjórn

    17. feb 2026

  • Eftirlitsátak í ferðaþjónustu: Þörf á áframhaldandi samræmdu eftirliti

    Vísbendingar eru um gerviverktöku í ferðaþjónustu og þóknun verktaka er…

    Ritstjórn

    12. feb 2026

  • Heimilt að takmarka starfsemi erlendra rútufyrirtækja

    Evrópudómstóllinn kvað þann 16. október 2025 upp dóm í máli C-482/23 þar…

    Ritstjórn

    30. jan 2026