Search
Close this search box.
Search
Close this search box.

Söguleg skóflustunga

Fyrsta skóflustunga að nýjum fjölbýlishúsum Verzlunarmannafélags Reykjavíkur (VR) í Úlfarsárdal var tekin fimmtudaginn 10. ágúst. Byggð verða tvö fjölbýlishús með leiguíbúðum fyrir félagsfólk VR.

Skóflustungan telst söguleg þar sem með henni er hafið fyrsta verkefni Blævar íbúðafélags. Blær er systurfélag Bjargs íbúðafélags sem er í eigu ASÍ og BSRB. Samið hefur verið um að Bjarg hafi umsjón með framkvæmdum auk þess að sinna rekstri Blævar. Á undanliðnum árum hefur áunnist mikil þekking og reynsla af slíkum framkvæmdum á vegum Bjargs sem ætlunin er að nýta í Úlfarsárdal og í verkefnum framtíðarinnar undir merkjum Blævar.

Reistar verða 36 íbúðir og er stefnt að því að þær verði afhentar leigjendum um áramót 2024-2025. Lengi hefur verið unnið að þessu verkefni. Reykjavíkurborg úthlutaði VR lóð í Úlfarsárdal árið 2021 og í byrjun árs 2023 var samið við Íslenska aðalverktaka um þróun svæðisins. Framkvæmdasamningur var síðan undirritaður áður en fyrsta skóflustungan var tekin.

Ný hugsun á leigumarkaði

Haft er eftir Ragnari Þór Ingólfssyni, formanni VR á vefsíðu félagsins, að þessi atburður marki tímamót og með starfsemi Blævar sé innleidd ný hugsun í á leigumarkaði í landinu. „Hugmyndafræðin á sér fyrirmynd á Norðurlöndunum og í Evrópu þar sem lífeyrissjóðir fjárfesta í uppbyggingu á leigumarkaði. Við vonumst til þess að íslenskir lífeyrissjóðir og aðrir sambærilegir langtímafjárfestar komi að framtíðaruppbyggingu Blævar. Nú er bara að láta hendur standa fram úr ermum og hefja verkið.“

Markmiðið er að tryggja leigjendum búsetuöryggi og hagkvæma leigu. Um leið er langtímafjárfestum opnuð leið til að fjárfesta á stærsta eignamarkaði á Íslandi en fram til þessa hafa þeir haft takmarkaða aðkomu að honum. Félagið er ekki óhagnaðardrifið en hagkvæm leiga verður í samræmi við rekstrarkostnað. Eigendur fá ávöxtun á fjárfestingu sína í samræmi við hækkun fasteignaverðs.

Að sögn Bjarna Þórs Sigurðssonar, stjórnarmanns í VR, munu önnur aðildarfélög ASÍ og BSRB geta fylgt í fótspor VR og gengist fyrir framkvæmdum fyrir sína félagsmenn undir merkjum Blævar. Unnið er skipulega að því að kynna þennan kost fyrir aðildarfélögum BSRB og ASÍ.

Verkið hafið: Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, Sigrún Guðmundsdóttir, í stjórn VR, Jennifer Schröder, í stjórn VR, Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, Selma Björk Grétarsdóttir, varaformaður VR, Bjarni Þór Sigurðsson, í stjórn VR, og Valur Hreggviðsson, framkvæmdastjóri framkvæmda hjá Íslenskum aðalverktökum, munda skóflurnar í Úlfarsárdal.

 

Author

Tengdar fréttir