Stefna og aðgerðaáætlun stjórnvalda gegn brotastarfsemi á vinnumarkað

Höfundur

Ritstjórn

Stjórnvöld hafa birt fyrstu stefnu sína og aðgerðaáætlun gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði. Með þessu marka stjórnvöld sér stefnu í málaflokknum og skuldbinda sig til að framfylgja aðgerðum í átt að settu markmiði. ASÍ, ásamt öðrum aðilum vinnumarkaðarins, tók þátt í mótun aðgerðanna.

Brotastarfsemi á vinnumarkaði er meinsemd sem bitnar á launafólki, heiðvirðum atvinnurekendum og samfélaginu öllu. Sé henni leyft að viðgangast grefur hún undan réttindum alls launafólks og heilbrigðum vinnumarkaði.  

Mikilvægar réttarbætur

Ný aðgerðaáætlun styrkir samstarf eftirlitsaðila á vinnumarkaði, bæði milli stofnana og í samstarfi þeirra við verkalýðshreyfinguna og samtök atvinnurekenda. Slíkt samstarf er lykilforsenda árangurs í baráttunni gegn brotastarfsemi.

Aðgerðirnar fela einnig í sér mikilvægar réttarbætur fyrir þolendur mansals og annarra alvarlegra vinnumarkaðsbrota, með styrkingu dvalarleyfa. Mikilvægt er að þolendur vinnumarkaðsbrota hafi raunhæfa og skýra útleið úr slæmum aðstæðum og ASÍ hefur kallað eftir því að dvalarleyfi þeirra verði styrkt til muna.

Stór vinnumarkaðsmál

Vert er að draga sérstaklega fram tvennt í aðgerðaáætluninni, en hvort tveggja eru stór vinnumarkaðsmál sem ASÍ hefur kallað eftir um árabil.

Með aðgerð nr. 9 í aðgerðaáætluninni skuldbinda stjórnvöld sig til að kanna nauðsyn þess að lögfesta viðurlög vegna brota á lágmarkskjörum launafólks. ASÍ telur afar mikilvægt að þessari aðgerð verði fylgt fast eftir enda hefur ASÍ og stéttarfélög þess um árabil bent á nauðsyn þess að koma slíkum viðurlögum á. Mikilvægt er að brot gegn lágmarkskjörum launafólks hafi afleiðingar og að viðurlög séu skilvirk, þannig er best tryggt að þau hafi fælingarmátt.

Með aðgerð nr. 10 er kveðið á um endurskoðun og styrkingu keðjuábyrgðar og skoðað verði að innleiða hana í allar stærri verklegar framkvæmdir. ASÍ leggur áherslu á mikilvægi keðjuábyrgðar. Sú sem nú er lögfest hefur sannað gildi sitt og hefur verulegan fælingarmátt gegn brotum gegn launafólki.

Hlekkur á frétt félags- og húsnæðismálaráðuneytis:

https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026/03/03/Fyrsta-stefnan-gegn-brotastarfsemi-a-vinnumarkadi-Markvissar-adgerdir-til-ad-sporna-vid-brotum/

Tengdar fréttir

  • Vorskýrsla Kjaratölfræðinefndar 2026 kynnt

    Ný vorskýrsla Kjaratölfræðinefndar, þar sem fjallað er þróun efnahagsmála og…

    Ritstjórn

    30. jún 2026

  • Veiking atvinnuleysistrygginga í vaxandi atvinnuleysi

    Atvinnuleysi hefur farið vaxandi síðastliðið ár. Samkvæm árstíðarleiðréttum tölum Hagstofu…

    Ritstjórn

    29. jún 2026

  • Ný lög breyta hlutverki stéttarfélaga við útgáfu atvinnuleyfa 

    Í lok árs 2025 var lagt fram frumvarp til breytinga…

    Ritstjórn

    25. jún 2026