Þjóðin telur stjórnvöld ábyrg fyrir húsnæðiskreppunni

Höfundur

Ritstjórn

Um 85% þjóðarinnar telja stjórnvöld bera mikla ábyrgð á því ófremdarástandi sem ríkir í húsnæðismálum hér á landi.

Þetta kemur fram í nýrri þjóðmálakönnun sem Gallup framkvæmdi fyrir Alþýðusamband Íslands (ASÍ).

Spurt var: Hversu mikla eða litla ábyrgð telur þú að stjórnvöld beri á stöðunni á húsnæðismarkaði í dag?

Alls kváðust 45% aðspurða telja ábyrgð stjórnvalda mjög mikla og 40% sögðu hana frekar mikla. Einungis 7% töldu hana frekar (5%) eða mjög litla (2%). Þá tóku 8% ekki beina afstöðu.

Um 55% kjósenda Sjálfstæðisflokksins telja stjórnvöld betra mikla ábyrgð á húsnæðiskreppunni, 69% kjósenda Framsóknarflokksins, 84% kjósenda Miðflokksins og um 90% kjósenda Samfylkingar, Viðreisnar, Pírata, Flokks fólksins og sósíalista.

Könnunin var gerð 13.-21. nóvember 2024.

Úrtak var 1.697 manns af öllu landinu, 18 ára og eldri, handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Tengdar fréttir

  • Greining ASÍ og BSRB á stöðu almenna íbúðakerfisins

    ASÍ og BSRB kynntu í dag nýja greiningu samtakanna um félagslegt…

    Ritstjórn

    28. apr 2026

  • Beint streymi: Fundur ASÍ og BSRB um almenna íbúðakerfið

    ASÍ og BSRB halda opinn fund um almenna íbúðakerfið og ábyrgð…

    Ritstjórn

    28. apr 2026

  • Hvar á láglaunafólk að búa?

    Greinin birtist fyrst á Vísir.is Húsnæðisöryggi er grundvöllur velferðar og…

    Finnbjörn A. Hermannsson

    27. apr 2026