Undirrituðu viljayfirlýsingu um húsnæðismál

Höfundur

Ritstjórn

Finnbjörn A. Hermannsson, forseti Alþýðusambands Íslands (ASÍ), undirritaði í dag viljayfirlýsingu sem Reykjavíkurborg, BSRB og Alþýðusambandið standa að í sameiningu um mögulegar aðgerðir til að auka framboð á húsnæði og flýta innviðauppbyggingu í Reykjavik. Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri undirritaði einnig viljayfirlýsinguna ásamt Sonju Ýri Þorbergsdóttur, formanni BSRB.

Undirritunin fór fram í Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem borgarstjóri stóð fyrir opnum kynningarfundi um húsnæðismál.

Viljayfirlýsingin er svohljóðandi:

Viljayfirlýsing

um aðgerðir til að auka framboð húsnæðis og flýta innviðauppbyggingu í Reykjavík

Með þessari viljayfirlýsingu vill, verkalýðshreyfingin og Reykjavíkurborg hefja nýja sókn í húsnæðismálum.

Reykjavíkurborg, kt. 530269-7609, Ráðhúsi Reykjavíkur, Tjarnargötu 11, Reykjavík, Alþýðusamband Íslands (ASÍ), kt. 420169-6209, Guðrúnartúni 1, Reykjavík, og BSRB kt. 440169-0159, Grettisgötu 89, Reykjavík, hafa með samvinnu sinni undanfarin ár brotið blað í húsnæðismálum eftir stofnun ASÍ og BSRB á Bjargi og síðar Blæ og úthlutun Reykjavíkurborgar á stofnframlögum í formi fjölmargra lóða til uppbyggingar almennra íbúða í eigu þessara félaga. Þannig hefur á annað þúsund efnaminni fjölskyldum á vinnumarkaði verið tryggt öruggt þak yfir höfuðið. Árangur verkefnisins hefur verið mikill og þá er eftirspurn eftir áframhaldandi uppbyggingu ótvíræður eins og biðlistar bera með sér.

Aðilar að þessari viljayfirlýsingu eru sammála um að skoða nýjar leiðir til þess að auka framboð og hraða uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Reykjavík og þannig stuðla að auknu jafnvægi á fasteignamarkaði. Í því skyni verða verður starfshópi, skipaður tveimur fulltrúum frá hverjum þessara aðila, falið að setja fram hugmyndir að verkefnum sem geta skapað sóknarfæri í núverandi ástandi.

Helstu verkefni starfshópsins eru:

· Kanna hvort hægt er að flýta uppbyggingu húsnæðis í Úlfarsárdal (M22) með aðkomu innviðasjóðs í eigu lífeyrissjóða.

· Kortlagning mögulega áframhaldandi uppbyggingu íbúðahúsnæðis til næstu 10-15 ára, m.a. byggt á þeim sóknarfærum sem skapast á grunni uppfærðs samgöngusáttmála.

· Rýna árangur verkefnisins „húsnæði fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur“ og gera tillögur að hugsanlegum breytingum, nýjum svæðum til lóðaúthlutana eða annarra leiða til að fjölga slíkum íbúðum og úthlutunarreglum fyrir annan fasa verkefnisins.

Starfshópur mun hefja störf strax og stefnt er að því að hann skili niðurstöðum sínum í lok maí. Kostnaður við undirbúninginn skiptist jafnt á milli aðila. Aðilar eru sammála um að þegar niðurstöður starfshópsins liggi fyrir verði metið hvort og þá á hvaða grunni verði unnið áfram með niðurstöðurnar.

Tengdar fréttir

  • Vilji til að rjúfa kyrrstöðu í húsnæðiskreppunni

    Fyrir verkalýðshreyfinguna sem sterkasta afl breytinga og framfara í landinu…

    Finnbjörn A. Hermannsson Hermannsson

    28. mar 2025

  • Þjóðin telur stjórnvöld ábyrg fyrir húsnæðiskreppunni

    Um 85% þjóðarinnar telja stjórnvöld bera mikla ábyrgð á því…

    Ritstjórn

    28. nóv 2024

  • Þjóðin vill að óhagnaðardrifin félög byggi húsnæði

    Tæp 80% þjóðarinnar telja að leggja eigi mikla áherslu á…

    Ritstjórn

    28. nóv 2024