Varða hlýtur styrk úr Jafnréttissjóði

Höfundur

Ritstjórn

Varða – rannsóknarstofnun vinnumarkaðarins hefur hlotið styrk úr Jafnréttissjóði til að framkvæma rannsókn á upplifunum og reynslu ungra kvenna á aldrinum 16-24 ára af erlendum uppruna sem eru hvorki í námi né atvinnu.

Um er að ræða rannsóknarverkefni sem tengist megindlegri rannsókn Vörðu um stöðu ungmenna af erlendum uppruna sem standa utan vinnumarkaðar og náms sem hefur hlotið styrk úr Þróunarsjóði innflytjendamála. Fyrirliggjandi gögn benda til þess að ungar konur af erlendum uppruna séu líklegri til að stunda hvorki atvinnu né nám en aðrir félagshópar í íslensku samfélagi og því mikilvægt að skoða stöðu þeirra og upplifun nánar. Rannsóknin byggir á frásögnum um upplifanir ungra kvenna af erlendum uppruna í rýnihóp.

Megin markmiðið er að varpa ljósi á aðstæður og reynslu viðmælenda og ná fram upplýsingum um hvaða leiðir þær telja vera til staðar til að auka virkni og þátttöku á vinnumarkaði eða auknum stuðningi til náms.

Úthlutun úr Jafnréttissjóði Íslands fór fram við hátíðlega athöfn í Hörpu þann 18. júní 2021.

Á myndinni eru frá vinstri: Margrét Einarsdóttir, sérfræðingur hjá Vörðu, Kolbeinn H. Stefánsson, dósent við HÍ og í stjórn Vörðu, Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB og í stjórn Vörðu, Kristín Heba Gísladóttir, framkvæmdastjóri Vörðu, Drífa Snædal, forseti ASÍ og stjórnarformaður Vörðu og Adda Guðrún Gylfadóttir, rannsakandi hjá Vörðu.

Tengdar fréttir

  • Ný skýrsla Vörðu um réttlát umskipti í samgöngum

    Réttlát umskipti er hugtak notað til að lýsa hvernig umbreytingar…

    Ritstjórn

    13. apr 2026

  • Opið fyrir umsóknir í Minningarsjóð Eðvarðs Sigurðssonar 2026

    Minningarsjóður Eðvarðs Sigurðssonar auglýsir eftir umsóknum. Sjóðurinn veitir styrki til…

    Ritstjórn

    25. mar 2026

    Eðvarð Sigurðsson
  • ASÍ 110 ára – samstaða verkafólks í rúma öld

    Í dag, 12. mars 2026, eru liðin 110 ár frá…

    Ritstjórn

    12. mar 2026