Verkalýðsskólinn, sem nú er haldinn í annað sinn, er þriggja daga námskeið sem haldið verður á Bifröst dagana 11.-13. maí 2023.
Á námskeiðinu verður lögð áhersla á framsögn og örugga tjáningu, sögu verkalýðshreyfingarinnar, réttindi og skyldur á vinnumarkaði, kjarasamninga, fundarstjórn og samningatækni.
Verkalýðsskólinn er opinn öllum en sérstaklega sniðinn að þeim sem hafa áhuga á kjarabaráttu og störfum verkalýðsfélaga, s.s. trúnaðarmönnum, starfsfólki stéttarfélaga og þeim sem koma að kjaraviðræðum.
Námskeiðið hlaut mikið lof þátttakenda á síðasta ári og hvetjum við alla áhugasama til skrá sig. Jafnframt hvetjum við þátttakendur til að kanna rétt sinn á styrk úr sínum fræðslusjóði vegna námskeiðsgjalda.
Námskeiðið er samstarfsverkefni Háskólans á Bifröst og Alþýðusambands Íslands. Allar nánari upplýsingar og skráning eru hér á vef Bifrastar.