Vilja hvalrekaskatt á ofsagróða banka

Höfundur

Ritstjórn

Verkalýðsfélög í Evrópu hvetja stjórnvöld til að leggja hvalrekaskatt á banka sem hagnast gríðarlega vegna vaxtahækkana.  

Í liðinni viku tilkynnti Seðlabanki Evrópu að stýrivöxtum yrði haldið óbreyttum eftir að hafa hækkað þá tíu sinnum það sem af er ári. Vextir hafa aldrei verið hærri frá því að evran var innleidd sem gjaldmiðill í ársbyrjun 2002.  

Bein afleiðing þessa er ofsagróði banka og hækkandi arðgreiðslur til hluthafa.  

Esther Lynch, framkvæmdastjóri Evrópusamtaka verkalýðsfélaga (ETUC), segir blasa við að vaxtahækkanir komi af fullum þunga niður á launafólk í álfunni og það sé í senn óréttlátt og skili ekki tilætluðum árangri. „Fólki sem þarf að taka lán til að kaupa bíl til að komast til vinnu eða þak yfir höfuðið eða, eins og færist mjög í vöxt, að eiga fyrir reikningunum, er gert að greiða sífellt hærri og ósanngjarnari vexti. Peningarnir rata beint í vasa moldríkra bankastjóra og hluthafa helstu banka.”  

Siðlausar afleiðingar kreppuástands 

Hún bætir við að aukinn lánakostnaður stuðli að gjaldþroti fleiri fyrirtækja. Við það fækki störfum auk þess sem dragi úr fjárfestingum einkaaðila á sama tíma og þörf sé á margföldum fjárfestingum til að greiða fyrir tilkomu græna og stafræna hagkerfisins.

„Við þurfum að stöðva siðlausar afleiðingar þessa kreppuástands með því að leggja hvalrekaskatta á banka og önnur fyrirtæki og geira sem hagnast sem aldrei fyrr vegna hærri vaxta sem almenningur greiðir,” segir framkvæmdastjórinn.  

Tengdar fréttir

  • Eftirlitsátak í ferðaþjónustu: Þörf á áframhaldandi samræmdu eftirliti

    Vísbendingar eru um gerviverktöku í ferðaþjónustu og þóknun verktaka er…

    Ritstjórn

    12. feb 2026

  • Heimilt að takmarka starfsemi erlendra rútufyrirtækja

    Evrópudómstóllinn kvað þann 16. október 2025 upp dóm í máli C-482/23 þar…

    Ritstjórn

    30. jan 2026

  • Rótgróinn ójöfnuður hamlar félagslegu réttlæti

    13. 01.26 Þrátt fyrir miklar framfarir í menntun, verulegan árangur…

    Ritstjórn

    13. jan 2026