Yfirlýsing vegna áformaðra breytinga á búvörulögum

Höfundur

Ritstjórn

Alþýðusamband Íslands (ASÍ) telur með öllu óviðunandi að stjórnvöld stefni beinlínis að því að skerða kjör launafólks og neytenda með stórhættulegum breytingum á búvörulögum. Jafnframt er vakin athygli á að sú hringamyndun og verðstýring sem stefnt er að með frumvarpinu vinnur beinlínis gegn nýgerðum kjarasamningum á almennum vinnumarkaði.

Forsaga máls er sú að matvælaráðherra lagði fram drög að frumvarpi sem kynnt var í samráðsgátt og síðan lagt fram á Alþingi. Nú hefur meirihluti atvinnuveganefndar lagt fram svo róttækar breytingar á frumvarpinu að fullyrða má að ekki er á ferð sama mál og ýmsir hagaðilar tjáðu sig um í umsagnarferlinu.

Alþýðusambandið tekur fram að beiðni um umsögn barst því ekki og ekkert samráð var haft við verkalýðshreyfinguna við vinnslu málsins.

Eftir breytingar atvinnuveganefndar er frumvarpið bein aðför að kjörum fólksins í landinu sem gert verður að sæta því að hagsmunaaðilar hafi með sér samráð um verka­skipt­ingu, verðlagn­ingu og fleira. Vart þarf að taka fram að slík framganga telst ólögmæt og refsiverð í öðrum atvinnugreinum. Til að tryggja lögmæti samráðs og hringamyndunar eru felld niður ákvæði um eftirlit Sam­keppnis­eft­ir­lits­ins og eft­ir at­vik­um bann við óheim­il­um samn­ing­um eða ákvörðunum fram­leiðenda, sem voru í upp­haf­legu frum­varpi ráðherra.

Fyrir liggur að breytingar þær sem meirihluti atvinnuveganefndar vill gera ganga miklu lengra en þekkist í nágrannalöndum og efasemdir hljóta að vakna um að þessi gjörningur stæðist skoðun samkvæmt EES-reglum. Að öðru leyti tekur ASÍ undir þau sjónarmið sem fram koma í áliti Samkeppniseftirlitsins sem telur málið allt til mikillar óþurftar.

Fyrir skemmstu var skrifað undir sögulega kjarasamninga á almennum vinnumarkaði sem hafa það einkum að markmiði að vinna gegn verðbólgu til að þannig megi færa niður vaxtastig í landinu. Samningunum fylgir mikilvæg yfirlýsing stjórnvalda um aðkomu þeirra næstu fjögur ár.

Vilji meirihluta atvinnuveganefndar vinnur beinlínis gegn þessu markmiði og vekur vægast sagt mikla furðu að kjörnir fulltrúar almennings hyggist ganga fram með þessu móti.

ASÍ telur alla meðferð málsins með miklum ólíkindum og hvetur þingmenn til að huga að afleiðingum gjörða sinna. Ólíðandi er með öllu að vélað sé um hagsmuni fólksins í landinu með svo ófyrirleitnum hætti, nánast í skjóli nætur, í bakherbergjum Alþingis

Tengdar fréttir

  • Ný skýrsla Vörðu um réttlát umskipti í samgöngum

    Réttlát umskipti er hugtak notað til að lýsa hvernig umbreytingar…

    Ritstjórn

    13. apr 2026

  • Opið fyrir umsóknir í Minningarsjóð Eðvarðs Sigurðssonar 2026

    Minningarsjóður Eðvarðs Sigurðssonar auglýsir eftir umsóknum. Sjóðurinn veitir styrki til…

    Ritstjórn

    25. mar 2026

    Eðvarð Sigurðsson
  • ASÍ 110 ára – samstaða verkafólks í rúma öld

    Í dag, 12. mars 2026, eru liðin 110 ár frá…

    Ritstjórn

    12. mar 2026