Palestína - Alþjóðavinnumálastofnunin

Palestína fær aðild að ILO

Höfundur

Ritstjórn

Þann 6.júní samþykkti 113.þing ILO, aðild Palestínu að Alþjóðavinnumálastofnunni – ILO með takmörkuðum réttindum.  Þetta er í samræmi við samþykkt Allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna frá 10.maí 2024. Þar með tekur Palestína stöðu sem ríki „án aðildar“ en hafði áður notið stöðu sem frelsishreyfing með takmörkuðum réttindum. 386 fulltrúar aðildarríkja, verkalýðshreyfingar og samtaka atvinnurekenda samþykktu tillöguna, 15 greiddu atkvæði gegn og 42 sátu hjá. Í þessu felst mikilvægt skref að fullri aðild að ILO og alþjóðasamfélaginu.

Aðild af þessu tagi fylgja öll hefðbundin réttindi aðildarríkja stofnunarinnar, þar með talið réttindi fulltrúa launafólks og atvinnurekenda. Þar til full aðild verður veitt hafa fulltrúar Palestínu þó ekki atkvæðisrétt en fullan þátttökurétt, málfrelsi og tillögurétt án þess að þurfa sérstaka heimild hverju sinni.

Samþykktin í heild sinni:

Resolution on the status of Palestine in the ILO and participation rights of Palestine in ILO meetings

Tengdar fréttir

  • Norræna verkalýðssambandið stendur með Grænlendingum

    Norræna verkalýðssambandið (NFS) lýsir yfir einhuga stuðningi við Grænlensku þjóðina…

    Ritstjórn

    18. jún 2025

  • Þing Alþjóðavinnumálastofnunarinnar hefst í dag – gigg hagkerfið í brennidepli 

    Í dag þann 2. júní hefst 113. þing Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (e.…

    Ritstjórn

    2. jún 2025

  • Stríð Tesla gegn skipulagðri verkalýðshreyfingu

    Bandaríska bílaframleiðandann Tesla þarf varla að kynna fyrir nokkrum manni.…

    Halldór Oddsson

    30. apr 2025