Vorskýrsla KTN 2025 kynnt á föstudag

Höfundur

Arnaldur Grétarsson

Vorskýrsla Kjaratölfræðinefndar verður kynnt í húsakynnum ríkissáttasemjara föstudaginn 13. júní kl. 9.00. Í skýrslunni er umfjöllun um launaþróun á almennum og opinberum vinnumarkaði og kjarasamninga sem gerðir hafa verið í yfirstandandi kjarasamningslotu. Einnig er í skýrslunni að finna umfjöllun um launastig, samsetningu launa og launadreifingu árið 2024 auk umfjöllunar um íslenskan vinnumarkað, þróun efnahagsmála og kaupmáttarþróun. 

Kjaratölfræðinefnd er samstarfsnefnd ríkis, sveitarfélaga og heildarsamtaka á vinnumarkaði um gerð og hagnýtingu talnaefnis um laun og efnahag til undirbúnings og eftirfylgni með kjarasamningum. Í nefndinni eiga sæti fulltrúar frá Alþýðusambandi Íslands, Bandalagi háskólamanna, BSRB, Kennarasambandi Íslands, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samtökum atvinnulífsins, forsætisráðuneyti, félags- og vinnumálamálaráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti, og Hagstofu Íslands.

Sýnt verður frá kynningunni í streymi á vef Kjaratölfræðinefndar og hefst útsending kl.9.00.

Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ og Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri SA munu ávarpa fundinn auk þess sem Hrafnhildur Arnkelsdóttir formaður KTN og Arnaldur Sölvi Kristjánsson sérfræðingur nefndarinnar fara yfir helstu niðurstöður skýrslunnar.

Tengdar fréttir

  • Haustskýrsla kjaratölfræðinefndar 2025

    Kjarasamningar hafa verið undirritaðir fyrir allflest launafólk á íslenskum vinnumarkaði…

    Ritstjórn

    27. nóv 2025

    Haustskýrsla Kjaratölfræðinefndar 2025
  • Útgáfufundur Kjaratölfræðinefndar 27. nóv

    Nýjasta skýrsla Kjaratölfræðinefndar verður kynnt í húsakynnum ríkissáttasemjara fimmtudaginn 27. nóvember…

    Ritstjórn

    27. nóv 2025

  • ASÍ spáir verðbólgu yfir markmiði út árið 2027

    Verðbólga mun reynast þrálát og vera yfir markmiði Seðlabankans út…

    Ritstjórn

    31. okt 2025