Verðlag á dagvöru hækkaði 0,58% í maí samkvæmt dagvöruvísitölu ASÍ og nemur árshækkun um 4,5%. Er þetta fjórða mánuðinn í röð sem vísitalan hækkar um meira en hálft prósent milli mánaða en sá hækkunartaktur jafngildir um 6% árshækkun á matvörum.
Megindrifkraftar verðhækkana í maí voru hækkanir á mjólkurvörum í öllum verslunum og almennar hækkanir í verslunum Samkaupa. Líkt og nefnt var í síðustu greiningu verðlagseftirlitsins hefur verðlag í verslunum Samkaupa, þ.e. Kjörbúðarinnar og Nettó farið hækkandi að undanförnu og verðlækkanir sem hófust síðsumars í fyrra því gengið til baka.
Dagvöruvísitalan hefur hækkað um 0,29% miðað við nýjustu tölur júnímánaðar, en þar af hefur verðlag í Bónus hækkað um 0,36%, í Krónunni um 0,21% og í Nettó um 0,15%.
Hlutfall vara sem hækkuðu í verði í Bónus og Krónunni fór lækkandi í apríl, en hækkaði svo aftur í maí þegar mánuðurinn var allur. Miðað við fyrstu tölur júnímánaðar er ekki að sjá að umfang hækkana dragist saman þó verðhækkanir séu minni. Fyrstu mælingar mánaðaris sýna að um 17% vara í Bónus hafi hækkað milli mánaða og 12% vara í Krónunni.
Verð á súkkulaði hækkar enn
Súkkulaðiverð hefur hækkað jafnt og þétt á Íslandi undanfarin ár. Verðhækkanir hafa komið fram í vörum frá flestum framleiðendum en frá janúar 2024 hefur verð á vörum frá Nóa Síríus hækkað um 37%, frá Freyju um 30% og frá Góu um 14% miðað við verð í Bónus og Krónunni. Þrátt fyrir að heimsmarkaðsverð á kakói hafi lítið breyst síðasta hálfa árið mælast enn hækkanir á súkkulaðiverði hér á landi.
Hækkanirnar vekja athygli fyrir þær sakir að þær haldast í hendur við betri afkomu sælgætisframleiðenda, en sem dæmi jókst rekstrarhagnaður Nóa Síríus um helming í fyrra og hagnaður fyrirtækisins meira en þrefaldast.
Það er ekki aðeins súkkulaði frá sælgætisframleiðendunum sem hefur hækkað mikið. Nóa Trítlar hafa til dæmis hækkað um 26% í Krónunni og 28% í Bónus frá janúar í fyrra og Góu snuð í Bónus hafa hækkað um 23%.
Vörur | Verslun | Hækkun frá janúar í fyrra |
Nóa Trítlar, ýmsar sortir | Bónus | 28% |
Nóa Trítlar, mix | Krónan | 26% |
Grænt ópal, sykurlaust | Bónus | 26% |
Góu snuð | Bónus | 23% |
Rautt risa ópal, sykurlaust | Krónan & Bónus | 19% |
Góu bangsahlaup | Krónan | 19% |
Trölla Tópas | Bónus | 19% |
Ópal, tvískiptur | Krónan | 18% |
Kaffi hefur einnig hækkað í verði síðustu misseri samhliða hækkunum á heimsmarkaðsverði. Í maí höfðu kaffibaunir hækkað í Bónus og Krónunni hækkað um 17% að meðaltali milli ára. Frá maí hefur verðið aftur tekið stökk og malað kaffi og baunir nú hækkað um 10-11% til viðbótar.
Eftir því sem kaffivaran er meira unnin hefur hún hækkað minna, enda hefur hrávörukostnaðurinn hækkað mest undanfarið ár.
Prís áfram ódýrasta verslunin
Prís er áfram ódýrasta verslunin í reglulegu eftirliti verðlagseftirlitsins, en eins og sést á grafinu hér að neðan hefur verð í Prís verið um 4% undir verði Bónus að meðaltali frá opnun, og er enn. Verðþróun í verslunum Samkaupa undanfarna mánuði kemur fram í breytingum á verðlagi milli verslana. Verðlag í Nettó lækkaði nokkuð eftir að Prís kom inn á markaðinn síðasta haust en þá fór verðlag í Nettó úr því að vera um 11-14% hærra en í Bónus í það að vera um 4-5% hærra. Síðustu mánuði hefur munurinn aukist og er verðlag í maí um 8,7% hærra að jafnaði en í Bónus. Til samanburðar er verðlag í Krónunni að jafnaði 0,6-1,1% hærra en í Bónus á þeim vörum sem fást í báðum verslunum en í Prís er verðlagið að jafnaði 3,5-4% ódýrara en í Bónus.