Eftirlitsátak í ferðaþjónustu: Þörf á áframhaldandi samræmdu eftirliti

Höfundur

Ritstjórn

Vísbendingar eru um gerviverktöku í ferðaþjónustu og þóknun verktaka er oft langt undir því sem þarf til að standa undir þeim kostnaði og réttindum sem launafólk nýtur samkvæmt kjarasamningum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslu Vinnustaðaeftirlits ASÍ. Skýrsluna má nálgast í heild sinni hér.

Vinnustaðaeftirlit Alþýðusambands Íslands (ASÍ) og stéttarfélaganna tók þátt í eftirlitsátaki með fólksflutningum og leiðsögn í ferðaþjónustu sumarið 2025. Átakið var skipulagt af ASÍ og framkvæmt í samvinnu við lögreglu, Skattinn og Vinnueftirlitið (VER). Markmiðið var að fá skýrari mynd af starfsháttum í greininni, tryggja að réttindi starfsfólks væru virt og auka samhæfingu eftirlitsaðila.

Á átta eftirlitsdögum yfir sumarið var rætt við 404 einstaklinga og skráðar 325 fyrirtækjakennitölur.

Niðurstöður ASÍ úr átakinu veita mikilvæga innsýn í starfshætti í greininni og benda til þess að verktaka sé útbreidd meðal leiðsögumanna og hópbifreiðastjóra. Fram komu vísbendingar um gerviverktöku, þar sem vinnufyrirkomulag og aðstæður bera einkenni hefðbundins ráðningarsambands þrátt fyrir að samningar séu gerðir um verktöku. Þá kom í ljós að þóknun verktaka er oft langt undir því sem þarf til að standa undir þeim kostnaði og réttindum sem launafólk nýtur samkvæmt kjarasamningum. Tilefni er því til að skoða nánar bæði mörk verktöku og það hvernig tryggja megi að kjör séu í samræmi við raunverulegan kostnað og ábyrgð.

Eftirlitsfulltrúar urðu einnig varir við að fararstjórar frá löndum utan EES, einkum frá Kína, sinntu í sumum tilvikum verkefnum sem falla undir starf leiðsögumanns, án þess að hafa tilskilin atvinnuréttindi hér á landi.

Samhljóða niðurstaða þátttakenda var að í jafn flókinni, margþættri og ört vaxandi atvinnugrein og ferðaþjónustan er dugi ekki að einstakar stofnanir starfi og stundi eftirlit hver í sínu horni. Niðurstöðurnar undirstrika að mati ASÍ þörf á áframhaldandi samræmdu eftirliti og skýrri ábyrgðarskiptingu til að tryggja sanngjörn starfskjör, heilbrigða samkeppni og trausta ferðaþjónustu til framtíðar.

Tengdar fréttir

  • Atvinnuleysi minnkar milli mánaða en er meira en í fyrra 

    Nýjar tölur úr mánaðarskýrslu Vinnumálastofnunar sýna að skráð atvinnuleysi var 4,8%…

    Ritstjórn

    13. apr 2026

  • Ný skýrsla Vörðu um réttlát umskipti í samgöngum

    Réttlát umskipti er hugtak notað til að lýsa hvernig umbreytingar…

    Ritstjórn

    13. apr 2026

  • Opið fyrir umsóknir í Minningarsjóð Eðvarðs Sigurðssonar 2026

    Minningarsjóður Eðvarðs Sigurðssonar auglýsir eftir umsóknum. Sjóðurinn veitir styrki til…

    Ritstjórn

    25. mar 2026

    Eðvarð Sigurðsson